Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Árni Sæberg og Smári Jökull Jónsson skrifa 9. mars 2026 14:10 Verktakar nota stórtækar vinnuvélar við niðurrifið. Vísir/Lýður Valberg Niðurrif húsa í Grindavík hófst í morgun en alls er áætlað að rífa á milli 35 og 40 altjónuð hús sem skemmst hafa í jarðhræringunum síðustu misseri.
Verktakar Jóns og Margeirs hófust handa við niðurrif þriggja húsa í bænum en fyrirtækið varð hlutskarpast í útboði um niðurrif fyrstu sex húsanna sem rifin verða. Þeir standa auk þess í sprunguviðgerðum í bænum, meðal annars við íþróttahúsið þar sem var ansi stór sprunga, sem margir kannast við af fréttamyndum. Markmiðið er að fækka svæðum í bænum sem eru afgirt og lokuð. Erfitt að sjá á eftir heimilum Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, segir erfitt að sjá á eftir heimilum fólks í niðurrif. Húsin geymi margar minningar en Grindvíkingar hafi ákveðið að líta á niðurrifið sem hluta af endurreisn bæjarins. Grindavíkurbær haldi utan um útboð vegna niðurrifsins og bæjarbúar sæki um niðurrif til bæjarins. Sú leið hafi verið talin skilvirkust. „Þetta er hluti af stórri og markvissri aðgerðaáætlun, til þess að gera þessi svæði örugg.“ Mikilvæg skref Starf skólastjóra í grunnskóla bæjarins hefur verið auglýst, kosið verður til bæjarstjórnar bæjarins í vor og matvöruverslun verður opnuð í bænum á næstu dögum. Ásrún segir öll slík lítil skref skipta máli við endurreisn Grindavíkur. „Við þurfum að auka þjónustu í bænum og mér finnst við hafa sýnt mikinn baráttuhug, Grindvíkingar. Þetta eru gríðarlega mikilvæg skref.“ Jón Gunnar Margeirsson, eigandi Jóns og Margeirs.Vísir/Lýður Valberg Niðurrif í Grindavík er hafið.Vísir/Lýður Valberg Húsin varða jöfnuð við jörðu.Vísir/Lýður Valberg
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira