Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. mars 2026 11:35 Runólfur Pálsson er forstjóri Landspítalans. Vísir/Vilhelm Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, ætlar að eiga fund með Dariu Peremot, háls-, nef- og eyrnalækni frá Úkraínu, sem þjónar til borðs á Landnámssetrinu í Borgarnesi.
Skessuhorn hefur fjallað um mál Dariu, sem hefur ekki getað fengið vinnu hjá heilbrigðisstofnun hér á landi, þrátt fyrir að hafa lokið lokaprófinu við læknadeild Háskóla Íslands til að sýna fram á kunnáttu sína. Til að fá réttindi hér á landi þarf hún að starfa sem aðstoðarlæknir annars læknis í sex mánuði en þrátt fyrir að hafa sótt um slíkar stöður vítt og breytt um landið hefur hún aðeins einu sinni fengið viðtal. Það var þegar auglýst var eftir læknum í sumarafleysingar á Selfossi. Dariu var ekki boðið starf. Runólfur sagðist í samtali við Skessuhorn hafa séð viðtal miðilsins við Dariu og viljað skoða málið nánar. Þá sé mikilvægt að skoða stöðuna heildstætt; hvernig tekið sé á móti flóttafólki með dýrmæta menntun og reynslu. „Við á Landspítalanum erum helsta menntastofnun landsins á þessu sviði og það þarf að fara ofan í saumana á þessu,“ segir Runólfur. „Þarna þarf að fara vel yfir málið og koma í veg fyrir að svona sé farið með fólk og dýrmæta menntun.“ Daria er 37 ára og var yfirlæknir á sjúkrahúsi í Kharkív. Hún kom hingað til lands ásamt móður sinni og tólf ára syni skömmu eftir innrás Rússa. Daria greinir frá því í viðtalinu við Skessuhorn að eiga vinkonu sem fór til Svíþjóðar en sú sé fyrir löngu farin að starfa sem læknir á stóru sjúkrahúsi.
Heilbrigðismál Landspítalinn Úkraína Flóttafólk á Íslandi Háskólar Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira