Liverpool tapaði aftur í Tyrk­landi

Aron Guðmundsson skrifar
Mario Lemina skoraði eina mark kvöldsins
Mario Lemina skoraði eina mark kvöldsins Vísir/Getty

Liverpool mátti sætta sig við eins marks tap í fyrri leik sínum gegn Galatasaray í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Lokatölur 1-0 sigur Galatasaray.

Leikur liðanna í kvöld fór fram á Rams Park í Tyrklandi og lærisveinar Arne Slot í liði Liverpool byrjuðu leikinn af krafti. 

Fyrstu mínútur leiksins voru algjörleg í eigu Liverpool og gekk Tyrkjunum erfiðlega að ráða við pressuna frá strákunum úr Bítlaborginni. 

En eins og þruma úr heiðskýru lofti voru það heimamenn í Galatasaray sem komust yfir á sjöundu mínútu þegar að Mario Lemina skoraði fyrsta mark leiksins eftir að boltinn hafði borist til hans í kjölfar fasts leikatriðis. Spurningarmerki má setja við varnarvinnu Liverpool í aðdraganda marksins. Staðan orðin 1-0 Galatasaray í vil.

Reyndist mark Lemina eina mark fyrri hálfleiksins. 

Liverpool taldi sig hafa náð inn jöfnunarmarki í kringum sjötugustu mínútu þegar að Dominik Szoboszlai kom boltanum í netið. Aðdragandi marksins var hins vegar skoðaður í VAR-sjánni og þar sást hvernig boltinn hafði viðkomu í höndinni á Ibrahima Konaté, leikmanni Liverpool, áður en hann barst til Szoboszlai. Markið fékk því ekki að standa. 

Liverpool tókst ekki að finna jöfnunarmark fyrir lok leiksins og því voru það heimamenn í Galatasaray sem fóru með eins marks sigur af hólmi og leiða því einvígið með einu marki fyrir seinni leik liðanna sem fer fram á Anfield í Liverpoolborg í næstu viku. Einvígið langt frá því að vera lokið.  

Þetta var annað tap Liverpool á Rams Park í Tyrklandi á yfirstandandi tímabili. Liðin mættust í deildarkeppni Meistaradeildarinnar fyrr á tímabilinu þar sem Galatasaray fór einnig með 1-0 sigur af hólmi.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira