Handbolti

Viggó á leið í topp­lið í bestu deild í heimi?

Aron Guðmundsson skrifar
Viggó í leik með Erlangen
Viggó í leik með Erlangen Vísir/getty

Íslenski landsliðsmaðurinn í handbolta, Viggó Kristjánsson, er orðaður við þýska stórliðið Flensburg og er góður gangur sagður í viðræðum milli hans og félagsins. 

Það er franski umboðsmaðurinn og félagsskiptasérfræðingurinn Hen Livgot sem greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlinum X í kvöld. 

Viggó þekkir vel til í þýsku úrvalsdeildinni. Hann er nú leikmaður HC Erlangen og var áður leikmaður Leipzig. 

Samkvæmt því sem Hen Livgot heldur fram eru viðræður langt komnar milli Viggós og Flensburg og miðað við að hann gangi til liðs við félagið sumarið 2027. 

Livgot segir að samkvæmt heimildum sínum sé góður gangur í viðræðunum og er farið að glitta í samkomulag. 

Um risa skref upp á við í þýsku úrvalsdeildinni væri að ræða fyrir Viggó. Flensburg er þessa stundina í 2.sæti deildarinnar. Sögulega séð hefur Flensburg þrisvar sinnum orðið þýskur meistari, nú síðast árið 2019. Þá hefur liðið í fjórgang orðið þýskur bikarmeistari og einu sinni unnið Meistaradeild Evrópu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×