Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. mars 2026 23:55 Birgir Guðmundsson er prófessor í fjölmiðlafræði. Bylgjan Prófessor í fjölmiðlafræði segist þegar sjá skautun á samfélagsmiðlum vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst og bendir á að bæði meiri- og minnihluti hafi talið atkvæðagreiðsluna muna skipta þjóðinni í fylkingar. Rannsóknir sýni fram á að sífellt færri leiti frétta úr ólíkum áttum. „
Ég hef ekki farið í fjölskylduboð síðan en maður reiknar með að þau muni loga yfir páskana og svona þegar fermingarveislurnar eru byrjaðar. En maður sér þetta strax á samfélagsmiðlum að fólk er almennt búið að taka einhverja afstöðu,“ segir Birgir Guðmundsson, prófessor í fjölmiðlafræði, í Reykjavík síðdegis í dag. „Því var náttúrulega bara spáð af öllum, bæði Kristrún Frostadóttir og stjórnarandstaðan töluðu um fyrir kosningar að þetta myndi skipta þjóðinni í fylkingar. “ Fyrir helgi greindu formenn ríkisstjórnarflokkanna frá því að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið verði haldin 29. ágúst. Þingsályktunartillaga var lögð fyrir Alþingi á þingfundi á mánudag og aftur á þriðjudag. Vert er að taka fram að þingmenn eru rétt að ljúka þingfundi dagsins er þessi orð eru rituð, rétt fyrir miðnætti, og hefur umræðunni verið frestað. „Málið hefur margar hliðar sem hægt er að rífast um og mér sýnist að menn verði alveg komnir í startholurnar með það. Það er nóg fóður í þessu til þess að takast á um þetta,“ segir Birgir. Rífist um hálfsannleik Hann segir að á Íslandi og víðar hafi umræðuhefðin undanfarin ár verið minna í skotgröfunum. „Ég held að þetta nýja upplýsingaumhverfi sem við búum við bæði hér og annars staðar leiði til skautunar í stærri málum og mælingar hafa verið að sýna það líka,“ segir Birgir. „Í þessu máli byggir deilan í rauninni á brotakenndum upplýsingum eða staðreyndum þannig að menn eru að rífast um hálfsannleik þannig að allir hafa að hluta til rangt fyrir sér eða rétt fyrir sér.“ Hann vísar í rannsókn framkvæmda af Fjölmiðlanefnd þar sem kemur fram að mikil skautun eigi sér nú þegar stað í samfélaginu. Fyrir þingkosningar árið 2024 töluðu fimmtán prósent þátttakenda um að þeir reyni að forðast fréttir. „Þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig þetta verður orðið hérna í júlí, þá eru menn í sumarfríi og svo framvegis og yrðu þá ekkert endilega að fylgjast með. Og sextíu prósent þeirra sem skoða fréttir eru ekki að skoða fréttir frá mörgum miðlum. Það eru bara fjórtán prósent sem gera það.“ Þá voru einungis 36 prósent sem skoðuðu miðla með sitthvort sjónarmiðið en tæpur fjórðungur skoðaði einungis miðla sem ríma við þeirra eigin skoðanir. Þannig getur fólk fests í svokölluðum bergmálshelli.
Fjölmiðlar Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Reykjavík síðdegis Bylgjan Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Utanríkismál Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira