Handbolti

Ótrú­leg dramatík í Ís­lendinga­slag þar sem ör­lögin réðust

Aron Guðmundsson skrifar
Kristján Örn Kristjánsson, Donni.
Kristján Örn Kristjánsson, Donni. Vísir/Vilhelm

Íslenski landsliðsmaðurinn í handbolta, Kristján Örn Kristjánsson skoraði þrjú mörk fyrir SAH í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld þegar að liðið glutraði niður góðri stöðu gegn Porto og mátti sætta sig við tap sem sér til þess að liðið missir af beinu sæti  í átta liða úrslit keppninnar. Lokatölur 29-30, eins marks  sigur Porto.

Leikurinn var lengi vel afar jafn en þegar að rétt rúmar ellefu mínútur eftir lifðu af leiknum var staðan 22-21 SAH í vil. Kristján Örn, betur þekktur sem Donni, steig þá upp og skoraði þrjú af næstu fjórum mörkum SAH og átti sinn þátt í því að liðið næði að byggja upp nokkurra marka forystu. 

Þeirri forystu hélt liðið hins vegar ekki út leikinn, heldur glutraði henni niður og fór svo að Porto fór að lokum með einu marki, 29-30. Úrslitin gera það að verkum að SAH, sem sat í toppsæti riðilsins fyrir þessa síðustu umferð riðlakeppninnar, nær ekki að halda í toppsætið og er þar með á leið í umspil fyrir átta liða úrslit keppninnar. 

Porto endar í öðru sæti riðilsins með sama stigafjölda og topplið Elverum sem hafði betur gegn Granollers í kvöld og tryggði sér þar með beint sæti í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar.  

Þorsteinn Leó Gunnarsson spilaði með Porto í kvöld en komst ekki á blað. Donni endaði með þrjú mörk fyrir SAH og hjá Elverum skoraði Tryggví Þórisson eitt mark.

Magnaður Óðinn en lið hans úr leik

Í milliriðli fjögur endaði íslenski landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson sem markahæsti leikmaður Kadetten með átta mörk er liðið tapaði með eins marks mun, 29-30 gegn Fredericia. Tapið gerir það að verkum að Kadetten endar í neðsta sæti síns riðils og er úr leik. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×