Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Birgir Olgeirsson skrifar 11. mars 2026 11:12 Brynja Dan Gunnarsdóttir, oddviti og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Garðabæ, segir það hafa komið sér í opna skjöldu að heyra af því að uppstillingarnefnd velti mögulega fyrir sér öðrum en henni í oddvitasæti flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Vísir/aðsend Það stefnir í talsverða spennu hjá Framsóknarflokknum í Garðabæ á laugardag þegar uppstillingarnefnd kynnir lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Eins og staðan er í dag er vitað til þess að tveir hafi boðið sig fram sem oddvita flokksins, Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi flokksins í Garðabæ, og Hlynur Bæringsson varamaður hennar.
Í síðustu kosningum náði Framsóknarflokkurinn manni inn í bæjarstjórn í fyrsta sinn í tólf ár og var 77 atkvæðum frá því að ná öðrum manni inn. Hlynur Bæringsson er einn af farsælustu körfuknattleiksmönnum Íslands með fjöldan allan af landsleikjum að baki og Íslandsmeistaratitla með Snæfelli og Stjörnunni.Aðsend Brynja Dan, sem er eigandi Extraloppunnar, er til viðtals í nýjasta hlaðvarpsþætti Komið Gott þar sem hún fór yfir þessi mál. Hún segir í samtali við Vísi að það hafi komið henni í opna skjöldu að Hlynur hefði sóst eftir oddvitasætinu. „Það er komin upp frekar skrýtin staða þar sem maður heyrir út undan sér orðróm og ákveðnar pælingar sem hafa komið mér í opna skjöldu,“ segir Brynja. Árangur Brynju í síðustu sveitarstjórnarkosningum var með talsverðum ágætum, að verða fyrsti bæjarfulltrúi flokksins í Garðabæ í tólf ár. „Ég hef unnið mína vinnu og barist fyrir því sem ég hef trú á innan bæjarstjórnar og með gildi Framsóknar að leiðarljósi. Það hefur ekki orðið neinn skandall og ég veit ekki til þess að það hafi breyst,“ segir Brynja. Hún segist hafa fengið símtal frá framkvæmdastjóra flokksins, Sigurjóni Jónssyni, sem jafnframt situr í uppstillingarnefnd flokksins í Garðabæ, þar sem henni var tjáð að Hlynur Bæringsson hefði einnig boðið sig fram í oddvitasætið. Meta hver er líklegastur til að ná árangri Sigurjón staðfestir í samtali við Vísi að nokkrir aðilar hafi sett sig í samband við uppstillingarnefndina og boðið fram krafta sína í oddvitasætið. Brynja Dan er fyrsti bæjarfulltrúi Framsóknar í Garðabæ í tólf ár. Nú stendur valið á milli hennar og Hlyns Bæringssonar sem skipaði 2. sæti listans í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Aðsend Það sé síðan uppstillingarnefndarinnar að meta hver sé líklegastur til að ná árangri fyrir stefnu Framsóknarflokksins og félagsins. Listinn verður kynntur á kaffihúsinu Dæinn í Urriðaholti í Garðabæ á laugardag. Talsvert leitað til Hlyns Hlynur Bæringsson staðfestir í samtali við Vísi að hann hafi boðið sig fram í oddvitasætið. „Það hefur verið töluvert leitað til mín hér í Garðabænum og ég beðinn um að gera það. Auðvitað verður maður líka að vilja það sjálfur og er þetta niðurstaðan eftir mörg samtöl,“ segir Hlynur. Hann segist sjálfur upplifa óvissu í aðdraganda ákvörðunar uppstillingarnefndar og hann hafi ekkert slæmt um Brynju Dan að segja. „En það er auðvitað alltaf óvissa sem fylgir svona uppstillingum, hvort sem það er prófkjör eða uppstilling, það er spenna í þessum málum um allt land.“ Hlynur Bæringsson fagnaði Íslandsmeistaratitli með Stjörnunni í körfubolta á síðustu leiktíð. Hann lagði skóna í kjölfarið á hilluna eftir 25 ára feril. vísir / hulda margrét Hlynur skipaði 2. sæti lista Framsóknar fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar í Garðabæ og hefur verið varamaður Brynju Dan í bæjarstjórn. Þau voru 77 atkvæðum frá því að ná tveimur fulltrúum inn í bæjarstjórn og segir Hlynur að markmiðið sé ávallt að gera betur. „Við sem heild stefnum sem allra hæst og Framsókn í Garðabæ er í góðum málum, eins og á landinu öllu.“ Fréttin hefur verið uppfærð með viðbrögðum frá Hlyni Bæringssyni.
Garðabær Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsóknarflokkurinn Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Sjá meira