Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Kjartan Kjartansson skrifar 12. mars 2026 09:05 Sýn og Síminn ræða nú um að Síminn kaupi vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Vísir Síminn og Sýn hafa náð samkomulagi um að Síminn kaupi alla vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Heildarvirði miðlanna er sagt um 5,2 milljarðar króna. Viðskiptin eru sögð háð niðurstöðum áreiðanaleikakönnunar og samþykki samkeppnisyfirvalda.
Í tilkynningu frá Sýn kemur fram að stjórn félagsins hafi tekið ákvörðun um að ganga til einkaviðræðna við Símann hf. á grundvelli skilmálaskjals um kaup á öllum vef- og útvarpsmiðlum félagsins. Rekstrareiningin sem um ræðir inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Síminn segir í sinni tilkynningu um að fyrirtækin hafi komist að samkomulagi um helstu skilmála vegna mögulegra kaupa Símans á vef- og útvarpsmiðlunum. Félögin skuldbindi sig til þess að vinna að því að undirrita kaupsamning á grundvelli skilmálanna. Viðskiptin séu þó háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunar, samkomulagi um endanlegan kaupsamning, samþykki stjórna beggja félaga og eftirlitsaðila. Heildarvirði (e. enterprise value) í viðskiptunum nemur samkvæmt skilmálaskjali 5.250 m.kr. Tekjur miðlanna á árinu 2025 eru sagðar hafa verið um þrír milljarðar króna. „Eins og áður hefur komið fram hefur stjórn Sýnar hf. haft framtíðarfyrirkomulag á rekstri fjölmiðlahluta félagsins til skoðunar. Sala umræddra miðla er liður í stefnumótandi endurskipulagningu rekstrar Sýnar sem miðar að því að einfalda starfsemi félagsins og styrkja rekstrargrundvöll þess til framtíðar. Með því að skerpa áherslur í rekstrinum er markmiðið að tryggja áframhaldandi framúrskarandi þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki og arðbæran rekstur til lengri tíma.“ Telja „vörumerkin“ falla vel að starfsemi Símans Haft er eftir Maríu Björk Einarsdóttur, forstjóra Símans, að vef- og útvarpsmiðlar Sýnar hafi fest sig í sessi sem ómissandi veita frétta og afþreyingar hjá meirihluta landsmanna. „Öflugur mannauður og sterk vörumerki miðlanna falla vel að okkar starfsemi, og við trúum því að sameinað miðlafyrirtæki undir móðurfélaginu Ásum, verði í góðri stöðu til að veita framúrskarandi fjölmiðlaþjónustu í síbreytilegu umhverfi.“ Starfsmönnum Sýnar var tilkynnt klukkan níu um starfsmannafund um ótilgreint efni sem hófst klukkan 9:15. Tilkynning um viðræðurnar við Símann var send til kauphallar á sama tíma. Á starfsmannafundinum var starfsfólki Sýnar sagt að söluferlið gæti tekið tólf mánuði hjá eftirlitsaðilum. Viðræðurnar hafi hafist að frumkvæði Símans. Eins og stendur ætli Sýn að halda rekstri sjónvarpsstöðva sinna áfram. Engin ákvörðun hafi verið tekin um hvað verði um sjónvarpsfréttir Sýnar. Erfiður rekstur og niðurskurður Rekstur Sýnar hefur verið þungur að undanförnu. Félagið tapaði 634 milljónum króna í fyrra. Niðurskurður hefur verið á fréttastofu Sýnar með uppsögnum á undanförnum mánuðum og þá var ákvörðun tekin um að hætta að senda út sjónvarpsfréttir um helgar. Vodafone keypti fjölmiðla 365 miðla að Fréttablaðinu undanskildu árið 2017. Fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemin hefur verið rekin í félaginu Sýn. Í fyrra ákváðu stjórnendur Sýnar að leggja niður tæplega þrjátíu ára gamalt vörumerki Stöðvar 2 og kenna fjölmiðla fyrirtækisins við Sýn. Fréttin verður uppfærð. Vísir er í eigu Sýnar.
Sýn Síminn Fjölmiðlar Samkeppnismál Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira