Handbolti

Íslendingaliðið lauk leik með tapi en Bjarki Már mætir GOG eða PSG

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Sigvaldi Björn skoraði fjögur mörk í tapi Kolstad. 
Sigvaldi Björn skoraði fjögur mörk í tapi Kolstad.  Grzegorz Wajda/Getty Images

Tveir leikir fóru fram síðdegis í Meistaradeildinni í handbolta. Íslendingaliðið Kolstad er úr leik og endaði keppnina með eins marks tapi gegn Kielce. Bjarki Már Elísson og félagar í Veszprém munu mæta annað hvort PSG eða GOG í umspilinu.

Leikur Kolstad og Kielce var spennandi en gestaliðið varð á endanum ofar.

Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur mörk fyrir Kolstad og Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði tvö mörk í tapinu. Sigurjón Guðmundsson stóð milli stanganna, en ekki nema eina sókn.

Kolstad átti ekki möguleika á því að komast áfram en með þessu sigri tókst Kielce að komast upp fyrir Veszprém og tryggja sér 3. sæti A riðilsins.

Veszprém tapaði nefnilega á sama tíma gegn Aalborg, sem endaði í 2. sæti. Væntanlega hefur Veszprém saknað Bjarka Más Elíssonar mikið en hann er að glíma við meiðsli þessa dagana.

Tapið gerir það að verkum að Veszprém datt niður í 4. sæti og 5. sæti gæti orðið lokaniðurstaðan ef Nantes vinnur sinn leik gegn toppliði Fuchse Berlin í kvöld.

Veszprém mun því mæta annað hvort PSG eða GOG í umspili um að komast í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×