„Þú ert að biðja mig um að finna eitt stig“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 12. mars 2026 21:55 Bjarni Fritzson vill halda áfram að efla handboltann hjá ÍR en óvíst er hvort hann haldi áfram þjálfun meistaraflokks. Vísir/Hulda Margrét „Ég var súper ánægður með strákana í dag. Mjög ánægður með varnarleikinn í fyrri hálfleik og sóknarleikinn líka, mér fannst við bara spila vel,“ sagði Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR, eftir tap gegn FH í Kaplakrika í loka umferð Olís-deildar karla. Lokatölur 34-28 og þýða úrslitin að ÍR er fallið niður í Grill-66 deildina.
Staðan var jöfn í hálfleik, 17-17, en erfiðar upphafsmínútur í síðari hálfleik reyndust vera vendipunktur leiksins. „Við byrjum seinni hálfleikinn í undirtölu og erum aular. Þeir taka hraðaupphlaup og mark yfir völlinn og svo förum við aftur í undirtölu mjög fljótlega, erum þá einum færri í fjórar mínútur. Mér fannst það gefa þeim þetta andrými til þess að ná að klára leikinn. Í grunninn var það þessi munur.“ ÍR hefði þurft að fá stig í leiknum til þess að halda sér í Olís-deildinni þar sem Stjarnan tapaði gegn Fram á sama tíma. Gekk það þó ekki upp. Hvernig gerir Bjarni upp þetta sveiflukennda tímabil hjá sínu liði sem þrátt fyrir fall komst í úrslitaleik Powerade bikarsins fyrir tveimur vikum. Slæm byrjun á tímabilinu reyndist of dýr „Við náttúrulega byrjum tímabilið frekar illa og það skrifast á mig. Það voru bara nokkrir hlutir í byrjun sem að voru ekki alveg að virka sem við vorum að gera og við missum menn í meiðsli og þá kemur smá svona spírall af því við fengum þarna Selfoss og Þór og fengum helvítis rothögg á móti Þór. Það tók svolítinn tíma að vinda ofan af því, svo tókst það og við erum búnir að vera helvíti góðir eftir áramót.“ Aðspurður um einhvern vendipunkt á tímabilinu þá segir Bjarni aðeins hafa munað stigi að liðið næði að halda sér uppi. „Svo er þetta náttúrulega það að þú ert að biðja mig um að finna eitt stig, ég get fundið það svona í átta leikjum. Stundum er lífið bara stöngin út. Burt séð frá þessu öllu þá er ég ekkert eðlilega stoltur af liðinu mínu. Við förum í bikarúrslit og erum mögulega yngsta lið sögunnar í bikarúrslitum. Við erum að spila á uppöldum strákum og það eru mjög margir búnir að rísa í vetur.“ „Við erum alveg búnir að ná því sem við viljum gera, það vantaði bara upp á herslumuninn. Fyrir mig þá er ég ósáttur við sjálfan mig hvernig við byrjuðum tímabilið, en sjúklega ánægður með strákana. Á engum tímapunkti í allan vetur var ekkert annað en bara áfram og geggjaður gangur í þessu hjá þeim,“ segir Bjarni. Framhaldið hjá Bjarna Fritzsyni Bjarni er í 8. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi kosningar og segir það vera næst á dagskrá hjá sér. Auk þess vill hann halda áfram að efla handboltann hjá ÍR. „Ég ætla bara að reyna að gera Reykjavík að betri borg, bara byrja á því og sjá hvort það sé ekki hægt að gera aðeins betur þar. Ég er bara ÍR-ingur og ætla bara að halda áfram að vinna að því að hjálpa ÍR að vera frábært handboltafélag. Við erum með einhverja tíu stráka í yngri landsliðunum og erum bara búnir að standa okkur frábærlega í að byggja upp handboltann hjá ÍR og ég verð bara áfram í því.“ Eins og sannur stjórnmálamaður talaði Bjarni í kringum framhaldið hjá sér, hvort hann yrði þjálfari meistaraflokks karla hjá ÍR áfram. Því beindist lokaspurningin beint að því efni, hvort hann myndi mæta til leiks næsta haust sem þjálfari ÍR. „Ég bara veit það ekki alveg. Ég hugsa að við setjumst bara niður eftir tímabilið og finnum bara hvað við viljum gera. Eina sem ég veit er að við munum spýta í og gera meira og gera betur, vera faglegri og við erum með mjög unga aðra stráka á leiðinni upp. Við munum bara stíga á bensíngjöfina og líta á þetta sem eina hraðahindrun að draumnum okkar.“
Olís-deild karla ÍR Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Bjóða upp á Barna Fan-Zone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ Sjá meira