Við erum að taka hlutverkin frá eldra fólki Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar 13. mars 2026 08:16 Fólk verður ekki hrumt af því að eldast. Fólk verður hrumt þegar samfélagið tekur frá því hlutverk, tengsl og tilgang. Saga öldrunarþjónustu á síðustu áratugum er að hluta saga um slíkt hlutverkatap. Í mörgum vestrænum samfélögum hefur orðið þróun sem sjaldan er rædd með gagnrýnum hætti: samfélagið hefur aðgreinst eftir aldri. Börn eru í skólum með börnum, fólk á vinnualdri er í vinnu með fólki á vinnualdri – og eldra fólk er í auknum mæli sett til hliðar, bæði félagslega og stofnanalega. Þessi þróun er ekki náttúrulögmál. Hún er afleiðing hugmynda og stefnumótunar. Ein þeirra kenninga sem höfðu veruleg áhrif á þróun og framkvæmd öldrunarþjónustu á síðustu öld er svokölluð hlédrægnikenning (disengagement theory), sem félagsfræðingarnir Elaine Cumming og William E. Henry settu fram árið 1961. Samkvæmt henni er talið eðlilegt – jafnvel æskilegt – að eldra fólk dragi sig smám saman í hlé frá samfélagslegum hlutverkum sínum þegar aldur færist yfir. Í fræðilegum skilningi var þetta sett fram sem lýsing á ferli en í framkvæmd varð þessi hugsun að einhverju allt öðru.Hún varð að réttlætingu fyrir því að taka frá fólki hlutverk, ábyrgð og tilgang. Þegar hlutverkin hverfa Í gegnum aldirnar var öldrun yfirleitt ekki tengd því að fólk hyrfi úr samfélaginu. Eldra fólk gegndi hlutverkum: sem leiðbeinendur, ráðgjafar, umönnunaraðilar, handverksfólk, sögumfólk og tengiliðir milli kynslóða. Í samfélagi þar sem kynslóðir lifðu og störfuðu saman var reynsla ekki vandamál – hún var auðlind. Þegar samfélagið fór að skipuleggja lífið í afmörkuð aldursskeið breyttist þetta. Eftirlaunaaldur varð ákveðin lína í sandinum. Þegar henni var náð var fólki í raun sagt að nú væri hlutverkinu lokið. Þetta eru í grunninn aldursfordómar – jafnvel þótt þeir birtist í kurteislegum búningi. Að líta á eldra fólk fyrst og fremst sem viðkvæman hóp sem þurfi að vernda og hlífa getur virst góðmennska. En þegar slíkt viðhorf leiðir til þess að fólk er svipt tækifærum til þátttöku, ábyrgðar og sjálfstæðis verður það skaðlegt. Fólk eldist ekki hraust og virkt með því að vera sett til hliðar.Aðrar kenningar í félagsfræði öldrunar benda einmitt til hins gagnstæða. Virknikenningin (activity theory) leggur áherslu á að vellíðan og lífsgæði á efri árum tengist áframhaldandi þátttöku í samfélagi og félagslegum hlutverkum. Samfellukenningin (continuity theory) bendir síðan á að fólk leitist við að halda áfram þeim lífsstíl, áhugamálum og tengslum sem hafa mótað líf þess áður. Í báðum tilvikum er niðurstaðan sú sama: hlutverk og þátttaka skipta máli. Frá „umönnun“ til valdeflingar Á síðustu árum hefur orðið mikil breyting í hugsun um stuðningsþjónustu við fólk sem eldist. Stuðningsþjónusta – eða heimaþjónusta – snýst í dag ekki fyrst og fremst um þrif. Þótt þrif geti vissulega verið hluti þjónustunnar þegar þörf er á er markmið hennar mun víðtækara og áhrifaríkara. Kjarninn er að styðja fólk til að halda áfram að lifa góðu og sjálfstæðu lífi. Það þýðir meðal annars að: rjúfa félagslega einangrun sporn gegn einmanaleika og tengslarofi viðhalda færni og daglegri getu styðja fólk til þátttöku í samfélaginu og í sumum tilfellum vinna markvisst að endurhæfingu. Í stað þess að gera hluti fyrir fólk er æ meira lögð áhersla á að gera hluti með fólki. Þessi nálgun er í takt við alþjóðlega stefnu um heilbrigða öldrun (healthy ageing) sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur lagt áherslu á. Velferðartækni sem styrkir sjálfstæði Á sama tíma hefur velferðartækni orðið sífellt mikilvægari hluti af þjónustu við fólk sem eldist. Slík tækni getur bæði aukið öryggi og gert daglegt líf auðveldara. Dæmi um þetta eru meðal annars: ryksugu- og skúringavélmenni sem sjá um dagleg þrif rafmagnsrúm sem gera það auðveldara að skipta um rúmföt og hreyfa sig í rúmi lyfjaskammtarar sem hjálpa fólki að taka lyf rétt og á réttum tíma snjallskynjarar sem auka öryggi á heimilum stafrænar lausnir sem auðvelda samskipti og þátttöku. Þetta eru kannski einföld tæki – en áhrifin geta verið mikil. Þegar dagleg verkefni verða léttari í framkvæmd getur fólk haldið sjálfstæði sínu lengur og búið áfram heima hjá sér. Markmiðið er ekki að skipta út mannlegum tengslum, heldur hið andstæða, að auka mannleg tengsl og að styðja fólk til að lifa lífi sínu á eigin forsendum. Heimilið má aldrei verða einangrun Að búa heima á eigin forsendum er ósk langflestra. En það má aldrei gerast á kostnað félagslegra tengsla. Heimili getur verið frelsi – en það getur líka orðið einangrun ef samfélagið gleymir mikilvægi tengsla. Þess vegna má stefna um að fólk búi lengur heima aldrei verða einföld sparnaðarstefna. Hún verður að vera samfélagsstefna um tengsl, þátttöku og lífsgæði. Og þess vegna þarf stuðningsþjónusta alltaf að hafa tvö markmið: að styðja sjálfstæði og að tryggja félagslega þátttöku. Samvera, samtöl, tengsl og þátttaka í samfélaginu eru ekki aukaatriði í þjónustu við fólk. Þau eru grundvallaratriði fyrir lífsgæði, heilsu og vellíðan. Ný kynslóð eldra fólks Það er líka mikilvægt að horfa til þess að næstu kynslóðir fólks sem eldast eru frábrugðnar fyrri kynslóðum. Fólk lifir lengur, er almennt hraustara og leggur meiri áherslu á heilsueflingu. Mörg stunda reglulega hreyfingu, taka þátt í félagslífi og hafa bæði vilja og getu til að halda áfram virkri þátttöku í samfélaginu langt fram eftir aldri. Þessi þróun kallar á nýja sýn á öldrun.Ekki sem tímabil afturhvarfs – heldur sem nýjan kafla í lífinu. Hlutverk og tilgangur skipta máli Það er áhugavert að sjá hvernig þessi umræða endurspeglast einnig í menningu samtímans. Sífellt fleiri kvikmyndir og sjónvarpsþættir fjalla um fólk á efri árum sem heldur áfram að leita að tilgangi, vináttu og nýjum verkefnum. Þar má nefna þætti og myndir á borð við A Man on the Inside, The Last Laugh, Grace and Frankie og fleiri. Þessar sögur minna okkur á nokkuð sem rannsóknir hafa lengi sýnt:að tilgangur, tengsl og hlutverk skipta miklu máli fyrir lífsgæði fólks – óháð aldri. Samfélag fyrir allar kynslóðir Ef við viljum samfélag þar sem fólk eldist hraust og virkt þurfum við að endurskoða eina grundvallarhugmynd:að aldur eigi að skilgreina hlutverk okkar í samfélaginu. Samfélag sem nýtir reynslu, þekkingu og þátttöku fólks á öllum aldri verður sterkara fyrir vikið. Það er einmitt hugsunin sem liggur að baki verkefnum sem leitast við að tengja kynslóðir á ný – eins og Kynslóðablandaranum, þar sem markmiðið er að skapa rými fyrir samveru, gagnkvæmt nám og tengslamyndun milli fólks á ólíkum aldri. Því kannski er stærsta verkefnið ekki að byggja fleiri stofnanir fyrir fólk sem eldist. Heldur að byggja samfélag þar sem fólk þarf síður á þeim að halda.Samfélag þar sem fólk heldur áfram að hafa hlutverk – alla ævina. Höfundur er Kynslóðablandari og tómstunda- og félagsmálafræðingur. Heimildir Cumming, E., & Henry, W. E. (1961). Growing Old: The Process of Disengagement. Havighurst, R. J. (1961). Successful Aging. The Gerontologist. Atchley, R. C. (1989). A Continuity Theory of Normal Aging. The Gerontologist. World Health Organization. (2015). World Report on Ageing and Health. World Health Organization. (2020). Decade of Healthy Ageing 2021–2030. Putnam, R. D. (2000). Bowling Alone. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rannveig Tenchi Ernudóttir Mest lesið Það sem Sjálfstæðisflokknum líður verst með Arnar Þór Ingólfsson Skoðun Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir Skoðun Viltu borga meira fyrir að leggja bílnum þínum í bílastæðahúsi? Regína Ásvaldsdóttir Skoðun Þegar framtíðin er seld á útsölu Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun Menntaforystan er að plata þig Andri Þorvarðarson Skoðun Verkalýðsfélög í faðmi hins opinbera Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Umhverfisvænasti orkugjafinn gleymdist Þórhallur Hákonarson Skoðun Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Jónsdóttir Skoðun Miðflokkarnir tveir í Kópavogi Pétur Björgvin Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Sóknin í efri byggðum Kópavogs Leifur Andri Leifsson skrifar Skoðun Taka þarf á gjörbreyttum aðstæðum í leikskólum Inga Þóra Þóroddssdóttir skrifar Skoðun Skiptir máli hvað við kjósum í sveitarstjórnakosningunum? Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Saman í félagi, Samfélagi Guðrún Elísa Sævarsdóttir skrifar Skoðun Borgin er ekki að drukkna í einkabílum Þórir Garðarson skrifar Skoðun Börnin, kennararnir og ábyrgðin Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Þegar endurtekning verður að „sannleika“ Anna Sigrún Jóhönnudóttir skrifar Skoðun 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts til almannaheillafélaga í Noregi Tómas Torfason skrifar Skoðun Gerum betur í Mosfellsbæ Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Af hverju Viðreisn? Berglind Robertson Grétarsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér hærri álögur í Reykjavík? Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Húsnæði á ekki að vera happdrætti fyrir ungt fólk Lilja D. Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Þegar framtíðin er seld á útsölu Anna Kristín Jensdóttir skrifar Skoðun Þið eruð kosin til að vinna saman, ekki forðast hvort annað Frosti Heimisson skrifar Skoðun Að fljóta sofandi að feigðarósi? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Þegar velferð aldraðra verður fasteignaverkefni Védís Einarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir skrifar Skoðun Banvænt ósamræmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er Vestfjarðavegur (60) í gegnum Dalina afgangsstærð? skrifar Skoðun Hvítt fyrir börn sem biðja um frið Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Farið á bak við þing og þjóð? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Mannréttindaiðnaðurinn Hlédís Maren Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nei takk, alls ekki kennari! Simon Cramer Larsen skrifar Skoðun Það sem Sjálfstæðisflokknum líður verst með Arnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Ösp Árnadóttir,Kjartan Hreinn Njálsson skrifar Skoðun Landeyjahöfn - Ný leið Bernharð Stefán Bernharðsson skrifar Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir skrifar Skoðun Setjum aukinn kraft í óhagnaðardrifna húsnæðisuppbyggingu í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hafnarfjörður er heimili okkar allra Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Sjá meira
Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun
Skoðun 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts til almannaheillafélaga í Noregi Tómas Torfason skrifar
Skoðun Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir skrifar
Skoðun Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Ösp Árnadóttir,Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir skrifar
Skoðun Setjum aukinn kraft í óhagnaðardrifna húsnæðisuppbyggingu í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun