Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Lovísa Arnardóttir skrifar 13. mars 2026 08:52 Gunnar Þór Geirsson, formaður Félags íslenskra heimilislækna, skorar á stjórnvöld að styðja betur við sérnám heimilislækna. Vísir/Einar Gunnar Þór Geirsson, formaður félags íslenskra heimilislækna, segir ekki raunsætt að fólk fái tíma hjá heimilislækni innan fimm daga eins og viðmið landlæknis geri ráð fyrir. Hann kallar eftir því að sérnám heimilislækna verði styrkt, gæði námsins sé í hættu.
Gunnar Þór ræddi ástand heilsugæslunnar í Bítinu á Bylgjunni í morgun en greint var frá því í úttekt Viðskiptaráðs í gær að meðalbiðtími eftir heimilislækni hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sé 27 dagar en viðmið landlæknis fimm dagar. Hann segir sína tilfinningu og annarra sem starfa innan heilsugæslunnar að biðtíminn eftir heimilislækni sé of langur. „Þetta getur alveg passað, þessar tölur frá Viðskiptaráði,“ segir Gunnar Þór en ítrekar að heilsugæslan forgangsraði því sem sé brátt. Samt sem áður sé biðtíminn allt of langur. Gunnar Þór segist ekki hafa tölur um stöðuna í Norðurlöndunum en í nágrannalöndunum, Danmörku og Noregi, þar sem heimilislæknar eru fleiri sé biðtíminn styttri. „Það er mikilvægt að fólk komist að á heilsugæslunni sem fyrst, að því sé sinnt, ef við náum að tækla vandamálið þar eru minni líkur á að þau fari í dýrara úrræði,“ segir Gunnar Þór og nefnir sem dæmi bráðamóttöku eða spítalavist. „Með því að setja aukinn pening í þetta kerfi erum við í raun og veru að spara í heild, en það er rétt að við erum of fá.“ Öflugt sérnám í hættu Hann segir samt sem áður jákvæða punkta líka. Það sé öflugt sérnám í heimilislækningum á Íslandi og vonandi á næstu árum verði fleiri sérfræðingar í heimilislækningum en það sé mikilvægt að styðja við sérnámið. Það hafi skort stuðning. „Við erum í raun og veru í dauðafæri að bæta ástandið en það þarf að fjárfesta í því, það kemur ekki af sjálfu sér.“ Gunnar Þór skrifaði grein í síðasta tölublað Læknablaðsins þar sem hann skoraði á Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra að standa við kosningamarkmið Samfylkingarinnar frá árinu 2024 um að tryggja fastan heimilislækni fyrir alla innan tíu ára. Í grein sinni segir Gunnar Þór það algjörlega raunhæft markmið en að til þess að af því yrði þurfi að styðja betur við sérnámið. Það sé í vandræðum. Fjöldi kennslustjóra sé ekki í samræmi við fjölda sérnámslækna í námi og því nái þeir ekki endilega að sinna sínu hlutverki. „Gæði og gott utanumhald hefur verið styrkur sérnámsins frá upphafi og hvað stærsti þátturinn í vinsældum þess. Þessi gæði eru ekki lengur til staðar þegar kennslustjórar ná ekki að sinna hlutverki sínu. Árangur síðustu ára og áratuga er í hættu,“ sagði Gunnar Þór í grein sinni. Gunnar skorar á Kristrúnu í viðtalinu við Bítið aftur, að láta verkin tala og styðja betur við námið. Hann segist hafa rætt málið við Ölmu Möller heilbrigðisráðherra og hún hafi tekið vel í málið en það vanti staðfestingu á því að það sé það sem raungerist. Mikilvægast að mál komist í farveg strax Hvað varðar biðtímann eftir heimilislækni og hvort að fimm daga viðmið landlæknis sé raunsætt segir Gunnar Þór að það sem sé mikilvægast sé að þegar fólk leiti á heilsugæsluna fái það svör. „Núna er kannski ekki raunsætt að þú fáir tíma hjá lækni innan þess tímaramma en það þarf að koma málunum í einhvern farveg,“ segir hann og að það sé best að gera það sem fyrst. Það sé samvinna milli fagstétta á heilsugæslunni en það sé gott að stefna að því að fólk hafi þann kost að heimsækja sinn heimilislækni á sinni heilsugæslu telji það þörf á. Það hafi sýnt sig að ef fólk er í stöðugum samskiptum við heimilislækni sem hefur innsýn í heilsu sína þá farnist fólki betur. Einkarekstur sé ein lausn af mörgum Gunnar segir ekki eina lausn leysa þennan vanda og ein þeirra sé að auðvelda heimilislæknum að vera með sinn eigin rekstur. Fram kom í úttekt Viðskiptaráðs, og hefur áður komið fram í greiningum, að rekstur einkarekinna heilsugæslna mælist hagkvæmari og biðtíminn er víða styttri eftir því að hitta heimilislækni. „Aðrar sérgreinar hafa færi á því að vera með eigin rekstur, eins og hjartaklæknar, og ég held að við sjáum núna á svart og hvítu að þessi þjónusta sem einkareknar heilsugæslur veita kemur mjög vel út og ég sé enga ástæðu fyrir því að þetta sé einhver leið sem við getum lagt áherslu á eins og aðrar.“ Hann segir þurfa samning við Sjúkratryggingar svo heimilislæknar geti verið í eigin rekstri og það sé langt frá síðasta útboði.
Heilsugæsla Heilbrigðismál Reykjavík Garðabær Kópavogur Mosfellsbær Hafnarfjörður Seltjarnarnes Samfylkingin Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Háskólar Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Erlent Fleiri fréttir Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Sjá meira