Heppni hjúkrunarfræðingurinn sem á að græða helling Berglind Guðmundsdóttir skrifar 13. mars 2026 11:30 Ég skrifaði grein um mjög einfalda staðreynd: að húsnæðislánin mín hafa hækkað þrátt fyrir að ég greiði af þeim reglulega. Sumir hafa bent mér á að mín upplifun sé röng. Að ég sé í raun að græða helling. Að staðan sé sanngjörn og að ég ætti jafnvel að telja mig heppna. Greinin mín snerist hins vegar um eina spurningu:Hvernig getur það verið að fólk á Íslandi borgi af lánum í mörg ár en skuldi samt meira? Ég opnaði heimilisbókhaldið mitt vegna þess að ég veit að ég er ekki ein. Fjöldi fólks hefur haft samband og sagt að það upplifi nákvæmlega það sama. Að borga og borga en sjá skuldirnar samt hækka. Í umræðunni hefur verið bent á að þó skuldir hafi hækkað þá hafi fasteignaverð einnig hækkað. Það er vissulega mikilvægt sjónarmið og rétt að hafa í huga þegar staða heimila er skoðuð. Það getur litið vel út á pappír.En pappír greiðir hvorki mat, hita né rafmagn. Flest okkar eru ekki að selja heimilið sitt. Við erum einfaldlega að reyna að eiga fyrir næstu mánaðamótum. Þess vegna skiptir þessi umræða máli. Hún snýst ekki bara um mitt heimilisbókhald heldur um efnahagslegt umhverfi sem snertir mörg heimili á Íslandi. Þess vegna þurfum við að ræða hvaða valkostir standa okkur til boða. Ég tel að tími sé kominn til að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ekki vegna þess að allar lausnir liggi þar heldur vegna þess að Íslendingar eiga rétt á upplýstri umræðu og raunverulegum valkostum um framtíð landsins. Að hefja viðræður er ekki það sama og að ganga í sambandið. En það er leið til að fá skýrari mynd af því hvaða valkostir standa okkur til boða. Höfundur er hjúkrunarfræðingur, greiðsluþreyttur lántakandi og með óþol fyrir „mansplaining“. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Ég skrifaði grein um mjög einfalda staðreynd: að húsnæðislánin mín hafa hækkað þrátt fyrir að ég greiði af þeim reglulega. Sumir hafa bent mér á að mín upplifun sé röng. Að ég sé í raun að græða helling. Að staðan sé sanngjörn og að ég ætti jafnvel að telja mig heppna. Greinin mín snerist hins vegar um eina spurningu:Hvernig getur það verið að fólk á Íslandi borgi af lánum í mörg ár en skuldi samt meira? Ég opnaði heimilisbókhaldið mitt vegna þess að ég veit að ég er ekki ein. Fjöldi fólks hefur haft samband og sagt að það upplifi nákvæmlega það sama. Að borga og borga en sjá skuldirnar samt hækka. Í umræðunni hefur verið bent á að þó skuldir hafi hækkað þá hafi fasteignaverð einnig hækkað. Það er vissulega mikilvægt sjónarmið og rétt að hafa í huga þegar staða heimila er skoðuð. Það getur litið vel út á pappír.En pappír greiðir hvorki mat, hita né rafmagn. Flest okkar eru ekki að selja heimilið sitt. Við erum einfaldlega að reyna að eiga fyrir næstu mánaðamótum. Þess vegna skiptir þessi umræða máli. Hún snýst ekki bara um mitt heimilisbókhald heldur um efnahagslegt umhverfi sem snertir mörg heimili á Íslandi. Þess vegna þurfum við að ræða hvaða valkostir standa okkur til boða. Ég tel að tími sé kominn til að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ekki vegna þess að allar lausnir liggi þar heldur vegna þess að Íslendingar eiga rétt á upplýstri umræðu og raunverulegum valkostum um framtíð landsins. Að hefja viðræður er ekki það sama og að ganga í sambandið. En það er leið til að fá skýrari mynd af því hvaða valkostir standa okkur til boða. Höfundur er hjúkrunarfræðingur, greiðsluþreyttur lántakandi og með óþol fyrir „mansplaining“.
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun