Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Sunna Sæmundsdóttir skrifar 13. mars 2026 13:38 Meðalverð á bensíni hefur hækkað um fimm til sex prósent á milli mánaða samkvæmt sviðsstjóra hagfræði- og greiningasviðs ASÍ. vísir/samsett ASÍ hefur þungar áhyggjur af hækkunum á bensínverði og áhrifum þeirra á veðbólgu. Álagning olíufélaga hafi verið í sögulegu hámarki og afkoma þeirra sterk. Engar forsendur séu fyrir því að hleypa hækkunum á heimsmarkaðsverði að fullu út í verðlag og stjórnvöldum beri að sýna aðhald.
Heimsmarkaðsverð olíu hefur hækkað undanfarið vegna átaka í Miðausturlöndum og Róbert Farestveit, sviðsstjóri hagfræði- og greiningasviðs hjá Alþýðusambandi Íslands, bendir á að meðalbensínverð hafi hækkað um fimm til sex prósent á milli mánaða hér á landi. Hann hafi þungar áhyggjur af stöðunni og sérstaklega með tilliti til þess að forsendur kjarasamninga verða endurskoðaðar í haust. „Þetta mun hafa nokkur áhrif inn í verðbólgumælinguna sem kemur í lok mánaðar. Við bentum á það í byrjun árs, í samhengi við upptöku kílómetragjaldsins, að álagning olíufélaganna væri sögulega há og hún hefur hækkað síðustu ár. Þá hefur afkoman verið sterk þannig að við teljum í sjálfu sér enga forsendu fyrir því að þessum hækkunum sé hleypt af fullum þunga út í smásöluverðið,“ segir Róbert. Bensínverð hefur hækkað á milli mánaða.vísir/Vilhelm Í greiningu sem Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku stéttarfélags, birti í gær segir að íslensku olíufélögin séu fjórfalt líklegri til að skila verðhækkunum en verðlækkunum til neytenda. Þar segir einnig að eldsneytisverð gæti verið um tuttugu krónum lægra ef olíufélögin færðu álagningu að langtímameðaltali. Róbert segir gríðarlega mikilvægt að verðbólga hjaðni. Horfur séu dökkar á næstu misserum og framlag fyrirtækja skipti máli. „Núna erum við auðvitað að sjá töluverðar hækkanir á olíuverði og okkur finnst þær rata of mikið í smásöluverðið.“ Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, gagnrýndi olíufélögin í kvöldfréttum á Sýn í gær. Hann sagði fákeppni ríkja á eldsneytismarkaði og kallaði eftir einhvers konar aðhaldi sem gæti falist í verðþaki. Róbert segir ASÍ ekki hafa skoðað sérstaklega hugmyndir um verðþak en telur þó að mögulega þurfi einhvers konar aðkomu stjórnvalda. „Það er svo sem ekki ný umræða um fákeppni á olíumarkaði en virk samkeppni skiptir okkur, bæði neytendur og almenning, miklu máli. Það getur verið ástæða til að grípa til aðgerða af hálfu stjórnvalda ef við sjáum það að það sé ekki virk samkeppni á markaðnum.“
Verðlag Bensín og olía Neytendur Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gagnaverafyrirtæki á Blönduósi stefnt vegna hundruða milljóna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira