Golf

Hulda Clara best í lokin og grát­lega nærri bráða­bana

Sindri Sverrisson skrifar
Hulda Clara Gestsdóttir hafnaði í 4. sæti í Jóhannesarborg í dag.
Hulda Clara Gestsdóttir hafnaði í 4. sæti í Jóhannesarborg í dag. Golf.is

Kylfingurinn Hulda Clara Gestsdóttir lék best allra á þriðja og síðasta hring golfmóts í Jóhannesarborg í Suður-Afríku sem lauk í dag. Hún var aðeins einu höggi frá því að fara í bráðabana um sigur á mótinu.

Hulda hafnaði í fjórða sæti mótsins sem nefnist Jabra Ladies Classic og er hluti af Sunshine atvinnumannamótaröðinni.

Hún lék á 67 höggum í dag, fimm höggum undir pari, eftir að hafa fengið sex fugla á hringnum. Hún fékk hins vegar skolla á átjándu holu og missti þar með af því að fara í bráðabana með þremur efstu kylfingunum.

Hulda hafði áður leikið fyrsta hringinn á -3 höggum en annan hringinn á pari.

Það var hin franska Lois Lau sem vann þriggja manna bráðabanann og þar með mótið.

Andrea Bergsdóttir varð í 24.-27. sæti á +2 höggum, eftir að hafa leikið lokahringinn á -2 höggum og farið upp um ellefu sæti.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék fyrstu tvo hringina báða á 76 höggum, eða +4 höggum hvorn, og var fjórum höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.

Íslenska þríeykið spilar aftur í Jóhannesarborg í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×