Er óheppni hjúkrunarfræðingurinn raunverulega óheppinn? Eggert Sigurbergsson skrifar 14. mars 2026 12:30 Í íslenskri þjóðfélagsumræðu skýtur reglulega upp kollinum ákveðin staðalímynd sem við getum kallað „óheppna hjúkrunarfræðinginn“. Þetta er sagan af heiðarlegum launþega sem horfir með vaxandi skelfingu á svartnættið þar sem höfuðstóll verðtryggða fasteignalánsins bólgnar út í heimabankanum mánuð eftir mánuð. Greiðslubyrðin hækkar og uppgjöfin virðist alger. Það er auðvelt að finna til samkenndar með þessari upplifun, enda er það sálfræðilega lýjandi að sjá skuldir sínar hækka í krónutölu þrátt fyrir skilvísa greiðslu afborgana. En þegar rýnt er fram hjá nafnstærðunum og horft á hörðu efnahagslegu staðreyndirnar, teiknast upp allt önnur og mun bjartari mynd af raunveruleikanum. Týnda kaupmáttaraukningin Það sem gleymist nánast undantekningarlaust í þessum harmagrát er mikilvægasti þáttur jöfnunnar, nefnilega raungildi launanna sem notuð eru til að borga af láninu. Frá ársbyrjun 2022 hefur almenn launaþróun ekki bara haldið í við verðbólguna, heldur skilað umtalsverðri kaupmáttaraukningu. Þegar búið er að draga frá allar hækkanir á vöru, þjónustu og húsnæði situr eftir hrein umframhækkun upp á um 7%. Við þetta bætast síðan þættir sem vinna gríðarlega hratt með launþegum þegar líður á lánstímann. Má þar nefna starfsaldurshækkanir, þar sem hjúkrunarfræðingurinn færist jafnt og þétt upp um launaflokka eða þrep samkvæmt kjarasamningum einfaldlega vegna aukinnar reynslu. Með aldrinum fylgir jafnframt aukin ábyrgð, til að mynda í formi nýrra stöðu, vaktstjórnar eða sérhæfingar, sem skilar sér beint í enn hærra launaumslagi. Þegar öllu er á botninn hvolft hefur þessi einstaklingur stærri hluta af ráðstöfunartekjum sínum aflögu í dag en fyrir fjórum árum til að takast á við lánið. Ef þessari hreinu kaupmáttaraukningu er beint markvisst í auka-innborganir á höfuðstól lánsins skapast snjóboltaáhrif sem vinna hratt á verðbótunum og draga verulega úr bæði lánstíma og heildarkostnaði. Stærðfræðin vinnur einfaldlega með lántakanum ef rétt er á spilunum haldið. Að kíkja í „pakkann“: Innri gengisfelling og evrópskur veruleiki Þegar fólk fær hnút í magann við að horfa á krónutölur lánanna sinna hækka, kallar það oft eftir því að „kíkja í pakkann“ – að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru í þeirri von að lánin verði loksins stöðug. En sá pakki kemur með fórnarkostnaði sem er sjaldan ræddur jafn opinskátt og höfuðstóll verðtryggðra lána. Með inngöngu í myntbandalag gefum við upp sjálfstæðan gjaldmiðil. Það þýðir að þegar efnahagsáföll skella á, sem gerist óhjákvæmilega í öllum hagkerfum, getur krónan ekki lengur tekið höggið og haldið hjólum atvinnulífsins gangandi. Þá tekur við fyrirbæri sem kallast innri gengisfelling. Í raunveruleika evrópsks launþega þýðir þetta gjarnan beinar launalækkanir eða launafrystingu. Til að gera atvinnulífið samkeppnishæft á ný er kostnaður skorinn niður beint í gegnum launaumslögin og naflaun geta beinlínis lækkað. Því fylgir oft stórfellt atvinnuleysi þegar fyrirtæki og stofnanir, sem geta ekki mætt áföllum með gengissigi, neyðast til að segja upp fólki í stórum stíl. Ofan á þetta bætist síðan oft á tíðum harkalegur niðurskurður ríkisins á grunnþjónustu á borð við heilbrigðiskerfið, til þess eins að standast ströng ríkisfjármálaviðmið myntbandalagsins. Raunveruleg óheppni Við skulum því máta evrópska pakkann við húseigandann. Á evrusvæðinu gæti hjúkrunarfræðingurinn vissulega glaðst yfir því að höfuðstóll lánsins stæði í stað. En hvaða máli skiptir stöðugur höfuðstóll ef þú hefur misst vinnuna í uppsagnahrinu sem fylgir innri gengisfellingu? Eða ef launin þín hafa verið fryst eða beinlínis lækkuð á sama tíma og vinnuálagið er aukið vegna niðurskurðar á spítalanum? Þá situr viðkomandi uppi með óbreytta greiðslubyrði í evrum, en þarf að reyna að standa straum af henni með skertum launum eða lágum atvinnuleysisbótum. Það er staða sem gerir stöðuga afborgun fljótt að algjörri martröð. Íslenska leiðin, með sinni sýnilegu verðbólgu, dreifir áfallinu á okkur öll og ver atvinnustigið. Það getur vissulega verið sársaukafullt á að horfa á blaði, en svo lengi sem kjarasamningar skila kaupmáttaraukningu á bakvið tjöldin höfum við bæði tekjurnar og atvinnuöryggið til að borga reikninginn. Höfundur lærði viðskipta- og sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eggert Sigurbergsson Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar