Handbolti

Haukar stöðvuðu sigur­göngu Eyjakvenna

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rakel Oddný Guðmundsdóttir var markahæst í liði Hauka í sigrinum á ÍBV.
Rakel Oddný Guðmundsdóttir var markahæst í liði Hauka í sigrinum á ÍBV. vísir/anton

Haukar lögðu ÍBV að velli, 25-23, í fyrsta leik 19. umferðar Olís-deildar kvenna í handbolta í dag. Þetta var þriðji sigur Hafnfirðinga í röð en með honum fóru þeir langt með að tryggja sér 3. sæti deildarinnar.

Haukar eru með 23 stig í 3. sæti Olís-deildarinnar, þremur stigum á undan ÍR sem er í 4. sætinu. Haukar mæta tveimur neðstu liðum deildarinnar, Selfossi og Stjörnunni, í síðustu tveimur umferðunum.

Fyrir leikinn á Ásvöllum í dag hafði ÍBV unnið fjóra leiki í röð. Eyjakonur eru í 2. sæti deildarinnar með þrjátíu stig, tveimur stigum á eftir toppliði Valskvenna. Klukkan 15:00 hefst leikur Vals og Fram á Hlíðarenda.

Rakel Oddný Guðmundsdóttir skoraði sjö mörk fyrir Hauka í dag og Sonja Lind Sigsteinsdóttir fimm. Sara Sif Helgadóttir varði fjórtán skot í marki heimakvenna sem voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 15-12.

Sandra Erlingsdóttir skoraði sex mörk fyrir ÍBV og Birna Berg Haraldsdóttir fimm. Amalia Froland varði fimmtán skot í marki gestanna. ÍBV mætir ÍR á heimavelli í næstsíðustu umferðinni og sækir svo Íslands- og bikarmeistara Vals heim í lokaumferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×