Handbolti

Donni drjúgur og Elvar með frá­bæran leik

Aron Guðmundsson skrifar
Kristján Örn Kristjánsson, Donni.
Kristján Örn Kristjánsson, Donni. Vísir/Vilhelm

Íslendingar létu til sín taka í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Kristján Örn Kristjánsson reyndist drjúgur fyrir sitt lið SAH í miklum spennutrylli gegn GOG sem lauk með jafntefli, 28-28.

Kristján Örn, betur þekktur sem Donni skoraði fjögur mörk fyrir SAH í dag en liðið leiddi með einu marki, 28-27, þegar aðeins nokkrar sekúndur eftir lifðu leiks. 

Því miður fyrir leikmenn SAH tókst Nicolai Pedersen að ná inn mikilvægu jöfnunarmarki fyrir GOG undir lokin og skildu liðin því jöfn, 28-28. 

Með jafnteflinu nær SAH hins vegar að halda GOG fyrir neðan sig í töflunni. SAH er nú með 34 stig í öðru sæti dönsku úrvalsdeildarinnar á meðan að GOG er í þriðja sæti með einu stigi minna. 

Elvar öflugur

Þá skoraði Elvar Ásgeirsson fimm mörk er lið hans Ribe Esbjerg bar sigurorðið af liði Grinsted í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Lokatölur urðu 28-32.

Elvar Ásgeirsson var flottur í dagvísir/Vilhelm

Grinsted hefur átt erfitt uppdráttar í dönsku úrvalsdeildinni til þessa og hafði aðeins nælt í fjögur stig fyrir leik dagsins gegn Elvari og félögum. Ekki nældi liðið í fleiri stig í dag. 

Elvar var á meðal markahæstu leikmanna Ribe-Esbjerg með sín fimm mörk í dag og þá gaf hann fjórar stoðsendingar og kom því að níu mörkum fyrir liðið sem nældi í mikilvægan sigur og færist fjær botni deildarinnar. 

Sem stendur er Ribe-Esbjerg nú með átján stig eftir 24 leiki og er aðeins tveimur stigum frá liðunum sem eru í efri hluta deildarinnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×