„Þetta er ekki búið“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 14. mars 2026 17:16 Anton Rúnarsson, þjálfari Vals. Vísir/Anton Brink Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, gat andað léttar eftir nauman eins marks sigur liðsins gegn Fram í Olís-deild kvenna í handbolta í dag.
Valskonur voru yfir í samtls um tvær mínútur í leik dagsins, en það dugði til og liðið sigldi heim eins marks sigri, 32-31. „Leikurinn var auðvitað bara svolítið upp og ofan. Þetta er ákveðið púsl með stöðuna á liðinu, en ég er hrikalega stoltur af stelpunum að ná að klára þetta í dag. Það var alls ekkert sjálfsagt og Fram er með frábært lið. Það voru margir hlutir sem við gerðum vel og aðrir hlutir sem við hefðum átt að gera betur, en við stigum heldur betur upp eftir að hafa lent tveimur mörkum undir og náðum að klára þetta hérna á síðustu sekúndunni,“ sagði Anton. Valsliðið er án nokkurra lykilleikmanna um þessar mundir vegna meiðsla og Anton viðurkennir að það sé erfitt. „Staðan mætti alveg vera betri. En þetta er bara eins og það er. Leikmenn detta út og þetta er ekki skemmtilegasti tímapunkturinn akkúrat þegar við eigum tvo leiki eftir af deildinni. En þetta er bara staðan og þá þurfa aðrar að stíga upp og yngri leikmenn að fá enn fleiri tækifæri. En þetta er bara ákveðin liðsheild og þvílíkur karakter að ná að klára þetta í dag.“ Hann segir einnig að það hafi verið gott að eiga eina Lovísu Thompson uppi í erminni í dag, en Lovísa skoraði 15 mörk fyrir Val. „Hún var auðvitað frábær í dag og dró svolítið vagninn fyrir okkur sóknarlega og kláraði þetta svo auðvitað í lokin með frábæru marki. En það var líka margt jákvætt í okkar leik, en það eru tveir leikir eftir af deildarkeppninni og við þurfum að halda fókus.“ Með sigrinum í dag er deildarmeistaratitillinn svo gott sem kominn í hendur Vals. Anton segir að liðið geti að einhverju leyti nýtt næstu tvo leiki í að slípa saman liðið með yngri og óreyndari leikmönnum áður en úrslitakeppnin tekur við. „Ég þarf bara aðeins að taka stöðuna á hópnum og leikmönnum. Þetta er svolítið bara svona frá degi til dags hvernig staðan er og svo þurfum við auðvitað bara að vera skynsöm í því sem við erum að gera. En við eigum tvo leiki eftir og við förum að sjálfsögðu í þá til að vinna. Þetta er ekki búið,“ sagði Anton að lokum.
Olís-deild kvenna Valur Fram Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira