Leggja til að Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Agnar Már Másson skrifar 15. mars 2026 00:22 „Við ætlum að gera það sem við gerðum á Gasa,“ er haft eftir ónefndum ísraelskum ráðamanni. Ísraelsmenn vilja ráðast í umfangsmikinn landhernað í Suður-Líbanon í von um að leysa upp Hezbolla. Þegar hafa um 800 dáið í árásum Ísraelsmanna í landinu. AP Líbönsk stjórnvöld hafa samþykkt tillögu frá Frökkum sem leggur grunn að friðarviðræðum við Ísrael. Tillögurnar eru sagðar kveða á um að Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki en Ísraelsmenn búa sig nú undir aukinn landhernað í Líbanon í von um að leysa upp Hezbolla.
Bandaríski fjölmiðillinn Axios greinir frá þessu með vísan til þiggja heimildarmanna sem þekkja til málsins. Líbanska ríkisstjórnin er sögð hafa samþykkt þessa tillögu, sem gæti verið til þess fallin að binda enda á átök milli hryðjuverkasamtakanna Hezbolla og Ísraels. Bandaríkin og Ísrael hafa tillögurnar enn til skoðunar, að sögn miðilsins. Síðustu tvær vikur hafa Ísraelsmenn gert árásir á fjölda skotmarka sem þeir segja tengjast Hezbolla og gefið enn frekar í eftir að Íranir og Hezbollah gerðu samræmdar og umfangsmiklar árásir á Ísrael á miðvikudag. Um 800 manns hafa fallið og meira en 850.000 manns hafa þurft að flýja heimili sín, að sögn AP. Fjölmiðlamenn við vinnu þar sem sandstorm hefur lagt yfir Dahiyeh, úthverfi í líbönsku höfuðborgarinnar Beirút, í dag.AP Allsherjarstríð braust aftur út milli Ísraelsrí og Hezbolla hinn 2. mars eftir að Hezbolla-liðar gerðu árás á Ísrael eftir dráp Ísraelsmanna á Ayatollah Ali Khameni, æðstaklerks Írans. Íranska klerkastjórnin hefur í gegnum tíðina stutt við Hezbolla-samtökin, sem stýra nú suðurhluta Líbanon. Hezbolla sögðust reyndar vera að verjast ítrekuðum árásum sem Ísraelsmenn hafa gert á Líbanon þrátt fyrir að vopnahlé hafði staðið yfir. Emmanuel Macron Frakklandsforseti.AP Að sögn ísraelksra og bandarískra ráðamanna hyggjst Ísraelher stórauka aðgerðir sínar á jörðu niðri í Líbanon, sem yrði til þess að að leggja undir sig allt svæðið við Litani-fljót og leysa upp hernaðarinnviði Hezbolla. Þetta gæti reynst stærsta landinnrás sem Ísraelsmenn hafa gert Líbanon síðan 2006. „Við ætlum að gera það sem við gerðum á Gasa,“ hefur Axios eftir ónafngreindu ísraelskum ráðamanni, sem vísar til þess að herinn ætlli að jafna þau hús við jörðu sem Ísraelsmenn telja að Hezbolla geymi vopn og haldi úti hernaði. Emmanuel Macron Frakklandsforseti lagði til að Ísraelsmenn og Líbanon funduðu í París um hugsanlegan frið og að Frakkar yrðu milligöngumenn. Viðbragðsaðilar rannsaka íbúðarhúsnæði í Sidon í Líbanon eftir árás Ísraelsmanna í dag. Tillaga franskra stjórnvalda kveður á um að Ísrael og Líbanon opni á viðræður, með stuðningi Frakka og Bandaríkjamanna, til þess að komast saman um „pólitíska yfirlýsingu“ innan við næsta mánuð, að sögn Axios. Heimildarmenn Axios segja að yfirlýsingin fæli í sér að Líbanon myndi viðurkenna Ísrael sem ríki og virða fullveldi og landamæri Ísraels. Þá myndu ríkin undirstrika samþykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóðana númer 1701 sem batt enda á stríðið árði 2006. Þá myndi líbanska ríkisstjórnin leggja sig fram við að koma í veg fyrri árásir gegn Ísrael frá sínu landsvæði og innleiða sínar eigin áætlanir til þess að afvopna Hezbollah og banna starfsemi hryðjuverkasamtakanna. Maður stendur ofan á rústum húsa í Dahiyeh, fyrri utan í Beirút í Líbanon.AP
Líbanon Frakkland Mest lesið „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Fréttir Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Innlent Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Innlent Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Veður Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Innlent John Alford fannst látinn í fangelsi Erlent Fleiri fréttir John Alford fannst látinn í fangelsi Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Sjá meira