Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Freyja Þórisdóttir skrifar 15. mars 2026 08:47 Ingibjörg Hrafnsdóttir og Embla Hlökk Jóhannesdóttir afhenda rektor undirskriftalistana. Vésteinn Gunnarsson Miðvikudaginn 11. mars síðastliðinn áttu nokkrir nemendur úr 4. bekk MR fund með rektor skólans, Sólveigu Guðrúnu Hannesdóttur, og afhentu henni tvo undirskriftalista.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá hópi nemenda í Menntaskólanum í Reykjavík (MR). Undarskriftarlistarnir voru annars vegar listi sem gengið hafði manna á milli í MR, með yfirskriftinni „Undirritaðir krefjast þess að latína skuli áfram kennd í 4. bekk málabrautar MR og jafnframt að latínunám verði ekki skert á fornmálabraut skólans.“ Undir hann ritaði hátt á þriðja hundrað manns en síðustu vikur hafa fyrrverandi nemendur MR tjáð sig um þá mögulegu ákvörðun að leggja niður latínukennslu á fyrsta ári, eða í 4. bekk. Seinni undirskriftarlistinn var af netinu en hann var opinn til undirskriftar dagana 6.–10. mars með yfirheitinu „Björgum latínukennslu í MR“ þar sem mótmælt var fyrirhuguðum breytingum á latínukennslu skólans. Undir hann rituðu 518. Í tilkynningunni segir að rektor hafi tekið vel á móti nemendunum, átti við þá orðastað og kvaðst mega búast við svari á næstunni. Í samtali við fréttastofu Vísis í febrúar sagði Sólveig „við höfum verið að berjast fyrir fornmálabrautinni og að því að fá nemendur til að skrá sig á þessa braut og að vekja áhuga hjá þeim á að læra fornmál.“ Hún hafði einnig orð á því að allar breytingar á stundatöflu fyrir nýnema næsta árs, skólaárið 26/27, væru miðaðar að því að reyna að laða fleiri nemendur á þessa braut. Sólveig benti á að þegar framhaldsskólinn var fjögur ár hafi latína aldrei verið kennd á fyrsta ári. Þegar skólinn var svo styttur í þrjú ár hafi það breyst og latína verið kennd öll árin svo að hún yrði ekki skert. Hún sagði marga nemendur hafa kvartað undan því að fagið sé þungt á fyrsta ári og því hafi þau ákveðið að breyta til. Á næsta ári verði því latína kennd á öðru ári í nýmáladeild og á öðru og þriðja ári í fornmáladeild. Auk þess verði kúrsi bætt við á fyrsta ári sem verður inngangur að tungumálanámi. Þar verði nemendum kennt um ýmis tungumál og þar með talið fornmál. „Nemendur í skólanum í dag munu ekki finna fyrir neinu. Þetta á bara við um nýnema sem eru að skrá sig í skólann fyrir næsta haust,“ sagði Sólveig í samtali við Vísi.
Skóla- og menntamál Reykjavík Framhaldsskólar Börn og uppeldi Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira