Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 15. mars 2026 13:03 Magnús J. Magnússon, sem er formaður Félags eldri borgara á Selfossi. Magnús Hlynur Hreiðarsson Starfsemi Félags eldri borgara á Selfossi hefur sjaldan eða aldrei verið eins öflug eins og í vetur enda er boðið upp á um 35 dagskrárliði alla vikuna. Stólaleikfimi, perlusaumur og Kínaskák njóta til dæmis mikilla vinsælda. Það nýjasta er að nú vilja eldri borgarar rauðvín með matnum á föstudögum en nautakjöt hefur verið tekið út af matseðlinum því það er svo erfitt að tyggja það.
Um 1100 manns eru í Félagi eldri borgar á Selfossi og fer félagsmönnum stöðugt fjölgandi. Dagskrá félagsins er mjög fjölbreytt en hún fer fram í Grænumörk, sem er félagsaðstaða félagsins í nokkrum sölum þar. Magnús J. Magnússon er formaður félagsins. „Já, þetta er náttúrulega magnað. Við erum með um ellefu hundruð manna félag og erum með 35 til 36 viðburði í viku og mikla þátttöku í öllu því sem boðið er upp á. Það sem við teljum skipta máli er það að allir finni eitthvað við sitt hæfi og ef einhver spyr hvort að það sé hægt að prófa þetta þá gerum við það,” segir Magnús. Stór hluti eldri borgara í Grænumörk borðar saman í hádeginu þar sem boðið er upp á hefðbundinn heimilismat. Á föstudögum er alltaf kjöt með fjölbreyttu meðlæti en það er þó eitthvað vesen þegar nautakjöt er á matseðlinum eins og Magnús þekkir. „Já, það er bara náttúrlega þannig ef í mötuneytinu er eitthvað kjöt, sem erfitt er að skera eða tyggja þá náttúrulega tökum við það af matseðlinum með sátt og samlyndi allra, sem eru þar”, segir hann. En þið viljið rauðvín stundum eða hvað? „Já, það er umræða um það á föstudögum í hádeginu hvort það sé ekki hægt að hafa örlítið af rauðvíni með og við erum svona að íhuga það,” segir Magnús hlægjandi. Facebooksíða félagsins
Árborg Eldri borgarar Áfengi Mest lesið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Lífið Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Lífið Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Lífið Bakaríið í beinni útsendingu Lífið Macklemore svarað Lífið Fleiri fréttir Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Sjá meira