Má ég líka gera upp í evrum? Berglind Guðmundsdóttir skrifar 15. mars 2026 22:30 Umræðan um krónuna og evruna kemur reglulega upp á Íslandi. Soldið svona sagan endalausa. Við höfum talað og rifist um þetta árum saman, en það hefur í raun ekki leitt neitt af sér. Umræðan verður líka fljótt tilfinningaþrungin. Sumir segja krónuna vera stóran hluta af sjálfstæði okkar. Aðrir segja hana veikja heimilin. Svona tala sérfræðingar oft í kross og margir sitja eftir ringlaðir. Ég viðurkenni að ég er ein þeirra. Þetta er augljóslega ekki einfalt mál. En einmitt þess vegna finnst mér mikilvægt að við spyrjum spurninga og skoðum staðreyndir. Spurningin sem ætti að skipta mestu máli hér er einföld: Getur líf almennings á Íslandi orðið fyrirsjáanlegra og stöðugra? Í þessari umræðu er vert er að benda á að mörg stærstu fyrirtæki Íslands gera upp í evrum. Ekki í krónum. Þau taka lán í evrum, gera samninga í evrum og reikna tekjur sínar í evrum. Af hverju? Jú, vegna þess að evran er stöðugri og fyrirsjáanlegri en íslenska krónan. Fyrirtæki sem starfa á mörkuðum erlendis reyna því oft að verja sig gegn gengissveiflum. Almenningur hefur hins vegar ekki þann möguleika og fær launin sín í krónum. Hjúkrunarfræðingurinn. Kennarinn. Venjulegt launafólk. Og þegar krónan veikist hækkar verðið á því sem við þurfum að kaupa. Mat, eldsneyti, lyf. En ég velti því fyrir mér: Ef evran getur skapað meiri stöðugleika fyrir fyrirtæki, gæti hún þá mögulega líka skapað meiri stöðugleika fyrir heimilin? Ég er ekki að halda því fram að evran sé töfralausn. En þetta er samt umræða sem við ættum að geta átt, ekki bara út frá tilfinningum eða stolti. Heldur líka út frá spurningunni sem skiptir flest heimili máli. Hvernig getum við gert lífið fyrirsjáanlegra fyrir almenning? Eða í einföldu máli: Má ég líka gera upp í evrum? Höfundur er hjúkrunarfræðingur sem trúir því að stundum séu einföldu spurningarnar þær mikilvægustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Umræðan um krónuna og evruna kemur reglulega upp á Íslandi. Soldið svona sagan endalausa. Við höfum talað og rifist um þetta árum saman, en það hefur í raun ekki leitt neitt af sér. Umræðan verður líka fljótt tilfinningaþrungin. Sumir segja krónuna vera stóran hluta af sjálfstæði okkar. Aðrir segja hana veikja heimilin. Svona tala sérfræðingar oft í kross og margir sitja eftir ringlaðir. Ég viðurkenni að ég er ein þeirra. Þetta er augljóslega ekki einfalt mál. En einmitt þess vegna finnst mér mikilvægt að við spyrjum spurninga og skoðum staðreyndir. Spurningin sem ætti að skipta mestu máli hér er einföld: Getur líf almennings á Íslandi orðið fyrirsjáanlegra og stöðugra? Í þessari umræðu er vert er að benda á að mörg stærstu fyrirtæki Íslands gera upp í evrum. Ekki í krónum. Þau taka lán í evrum, gera samninga í evrum og reikna tekjur sínar í evrum. Af hverju? Jú, vegna þess að evran er stöðugri og fyrirsjáanlegri en íslenska krónan. Fyrirtæki sem starfa á mörkuðum erlendis reyna því oft að verja sig gegn gengissveiflum. Almenningur hefur hins vegar ekki þann möguleika og fær launin sín í krónum. Hjúkrunarfræðingurinn. Kennarinn. Venjulegt launafólk. Og þegar krónan veikist hækkar verðið á því sem við þurfum að kaupa. Mat, eldsneyti, lyf. En ég velti því fyrir mér: Ef evran getur skapað meiri stöðugleika fyrir fyrirtæki, gæti hún þá mögulega líka skapað meiri stöðugleika fyrir heimilin? Ég er ekki að halda því fram að evran sé töfralausn. En þetta er samt umræða sem við ættum að geta átt, ekki bara út frá tilfinningum eða stolti. Heldur líka út frá spurningunni sem skiptir flest heimili máli. Hvernig getum við gert lífið fyrirsjáanlegra fyrir almenning? Eða í einföldu máli: Má ég líka gera upp í evrum? Höfundur er hjúkrunarfræðingur sem trúir því að stundum séu einföldu spurningarnar þær mikilvægustu.
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun