Íbúar njóti árangursins Bragi Bjarnason skrifar 16. mars 2026 08:15 Hlutverk okkar í samfélaginu eru ólík. Ég tel mig ótrúlega heppinn að vera í þjónustu fyrir samfélagið okkar ásamt svo mörgu öðru góðu fólki. Verkefnin hafa verið ærin og ekki hefur þetta verið dans á rósum allan tímann. En þegar árangur sést er þetta allt þess virði. Nú þegar líður að lokum þessa kjörtímabils og horft er til kosninga í maí er áhugavert að líta aðeins til baka og um leið að horfa fram á veginn. Fjallað verður um helstu málefni sveitarfélagsins á næstu vikum, hvað hefur áunnist á síðustu árum og hvert við viljum stefna. Það er ekki úr vegi að byrja á fjármálahlutanum. Erfiðri stöðu snúið við Bæjarstjórn tók við erfiðri fjárhagsstöðu sveitarfélagsins árið 2022. Höfðu skuldir þá rúmlega tvöfaldast úr 12,3 milljörðum 2018 í 28,3 milljarða 2022. Skuldaaukningin upp á 16 milljarða króna var tilkomin vegna síendurtekins tapreksturs og var tapið orðið um 7,8 milljónir á dag. Það sjá allir að svona lagað gengur ekki upp og við þessu varð að bregðast hratt og af skynsemi og áræðni. Mynd 1: Heildarskuldir Árborgar ásamt áætlun 2025-2029 Við réðumst strax í að taka erfiðar og á stundum óvinsælar ákvarðanir til að rétta fjárhag sveitarfélagsins. Við erum nú í miklu betri stöðu, þar sem jafnvægi hefur náðst. Einhverjir hafa haldið því fram að sumar af þeim aðgerðum sem ráðist hafi verið í hafi verið óþarfar. Það er einfaldlega ekki rétt. Unnið var markvisst eftir áætlun og sjá mátti á ýmsum tímapunktum hvernig hagur sveitarfélagsins breyttist til hins betra. Stendur það nú sterkara eftir. Sem dæmi er skuldaviðmið komið vel undir 150 prósent og heldur sú þróun áfram á næstu árum með áframhaldandi ábyrgri fjármálastjórn. Mynd 2: Rekstrarniðurstaða A- og B hluta Svf. Árborgar ásamt áætlun 2025-2029 Lántaka í lágmarki Við höfum nálgast verkefnið af hreinskilni og alltaf haldið íbúum upplýstum um stöðu mála og framvindu aðgerða. Tölurnar styðja við þá frásögn líkt og sjá má á myndum. Reksturinn er orðinn jákvæður aftur og lántaka í lágmarki. Fyrir sveitarfélag eins og okkar sem er í örum vexti getur fjárfestingaþörf verið talsverð en engu að síður er henni aðeins að hluta til mætt með lántöku. Sýnir það glögglega þá jákvæðu breytingu sem hefur orðið á fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs. Bjart framundan þótt verk sé fyrir höndum Við íbúar eigum bæði rétt á og viljum fá ákveðna þjónustu frá sveitarfélaginu okkar, auk þess sem við viljum að skattfé sem við greiðum til hins opinbera sé nýtt á skynsamlegan hátt. Hér í Árborg fara um 900 milljónir í launakostnað og rúmlega 500 milljónir í annan rekstrarkostnað í hverjum mánuði. Heildarrekstur sveitarfélags fer fram í tveimur einingum ef svo má segja; A- og B-hlutum. Innan A-hluta er hefðbundin starfsemi - fjármögnuð með skattekjum og þjónustugjöldum. Undir það fellur leik- og grunnskóli, frístundastarf, sundlaugar og snjómokstur og önnur slík þjónusta. B- hluti er síðan önnur starfsemi þar sem sveitarfélagið á 50 prósent eða meiri eignahlut, svo sem í vatnsveitu, fráveitu og öðrum stofnunum, og eru Selfossveitur ágætt dæmi. Saman myndar þetta samstæðu sveitarfélagsins og er það verkefni kjörinna fulltrúa að bæði A- og B-hluti skili jákvæðri niðurstöðu. Þegar við horfum bara á rekstur A-hluta Sveitarfélagsins Árborgar sést á meðfylgjandi mynd að meirihluti bæjarstjórnar hefur verið á réttri leið undanfarin ár og náð að draga verulega úr hallarekstri A-hluta. Hefur hann lækkað úr 3.400 milljón króna halla niður í um 500 milljónir á þessu ári. Ýmis teikn eru á lofti um að hallinn verði í raun enn minni, en betri er einn fugl í hendi... og allt það! Við höfum sett okkur að markmiði að umræddur A-hluti verði rekinn með 250 milljón króna afgangi árið 2028 og afgangur verði af rekstrinum til framtíðar. Slíkt markmið er sjálfsagt og eðlilegt og eigum við alltaf að forðast að lenda í sömu rekstrarvandræðum og við erum nú að koma okkur uppúr. Mynd 3: Rekstrarniðurstaða A-hluta Svf. Árborgar ásamt áætlun 2025-2029 Árangurinn er okkar allra Þekking verður til í gegnum söguna og reynslu en einnig þarf að móta skýra framtíðarsýn. Við í meirihluta bæjarstjórnar viljum að áfram verði unnið að ábyrgum rekstri og skila ávinningi þeirrar vinnu til íbúanna. Slíkur ávinningur getur komið fram í lægri álögðum gjöldum, t.d. fasteignagjöldum, sem og bættri og ódýrari þjónustu. Slík framtíðarsýn endurspeglast í ákvörðunum og við gerð fjárhagsáætlana næstu ára. Ég geri sjálfur ekki greinarmun á þeirri þjónustu sem sveitarfélaginu ber að veita samkvæmt lögum eða annarri þjónustu sem við sem samfélag teljum mikilvæga. Sem dæmi nefni ég sérhæfða þjónusta við börn, fullorðna og fjölskyldur, sérhæfða þjónustu leik- og grunnskóla, snjómokstur, umhirðu opinna svæða, félagsmiðstöð barna eða eldri borgara, opnunartíma sundlauga og gámasvæðis og fleira sem eru hluti af heildarþjónustu sveitarfélagsins. Það er vor í lofti og dagana lengir. Mér er í huga þakklæti til allra sem hafa komið að verkefnum Árborgar undanfarin ár. Undir það falla kjörnir fulltrúar sem höfðu kjark til að taka erfiðar ákvarðanir, starfsmenn sem hafa komið með ótrúlega góðar lausnir í erfiðri stöðu og margar hverjar skilað betra vinnulagi til framtíðar, ráðgjafar, sem miðluðu þekkingu og veittu aðstoð á réttum stöðum og síðan ekki síst allir íbúar sveitarfélagsins sem hafa tímabundið tekið á sig auknar álögur og í einhverjum tilfellum skerta þjónustu. Það birtir. Höfum söguna í huga og horfum til framtíðar - Árborg til heilla! Höfundur er bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bragi Bjarnason Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun