Sjáðu Richarlison refsa Liverpool og Bruno nálgast metið Sindri Sverrisson skrifar 16. mars 2026 08:51 Richarlison í baráttunni við Virgil van Dijk á Anfield í gær. Getty/Carl Recine Staða Manchester United er orðin vænleg í baráttunni um meistaradeildarsætin í ensku úrvalsdeildinni, eftir 3-1 sigur gegn Aston Villa og 1-1 jafntefli Liverpool við Tottenham. Mörkin úr leikjunum og viðbrögð stjóranna má sjá á Vísi.
Dominik Szoboszlai virtist hafa tryggt Liverpool þrjú stig gegn Tottenham í gær með frábæru aukaspyrnumarki. Cody Gapko átti skot í stöng en staðan var 1-0 þar til í lokin að Richarlison refsaði værukærum varnarmönnum Liverpool með jöfnunarmarki. Þar með er Tottenham enn stigi frá fallsæti, nú þegar átta umferðir eru eftir, en Liverpool er í 5. sæti og aðeins stigi fyrir ofan Chelsea. Líklegast munu fimm efstu liðin fá öruggt sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. United er í 3. sæti með 54 stig, fimm stigum fyrir ofan Liverpool og þremur fyrir ofan Aston Villa eftir 3-1 sigurinn gegn Villa í gær. Bruno Fernandes hélt áfram að bæta við stoðsendingum og átti hornspyrnu sem Casemiro stangaði inn auk þess að gefa frábæra stungusendingu á Matheus Cunha í öðru marki United. Fernandes er núna með 16 stoðsendingar á leiktíðinni og hefur enginn átt fleiri stoðsendingar fyrir United á einni leiktíð í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Portúgalinn er fjórum stoðsendingum frá metinu sem Thierry Henry og Kevin De Bruyne deila. Benjamin Sesko innsiglaði sigurinn með þriðja marki United en Ross Barkley hafði jafnað metin í 1-1 á 64. mínútu. Bæði mörkin þurfti að skoða vegna gruns um að rangstæður leikmaður truflaði sjónlínu markvarðar.
Enski boltinn Mest lesið Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Fótbolti Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Fótbolti „Ha? Hvernig getur það verið?“ Sport Eiður Smári besti sérfræðingurinn á HM Fótbolti Móðir NFL-stjörnu fannst látin og bróðir hans ákærður fyrir morð Sport KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir Íslenski boltinn Hvað er að gerast hjá Manchester United? Enski boltinn Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Fótbolti „Ég er farinn“ Íslenski boltinn Hvor goðsögnin kveður í kvöld? Fótbolti Fleiri fréttir Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Sjá meira