Aldrei séð flóð falla á þessum stað á átján ára ferli Lovísa Arnardóttir skrifar 16. mars 2026 08:47 Gestur við sex metra skafl úr snjóflóðinu sem féll við Siglufjörð um helgina. Björgunarsveitin Strákar Gestur Hansson, snjóflóðaeftirlitsmaður á Siglufirði, segir veðrið á Siglufirði að ganga niður og það hafi verið bærilegt í nótt. „
Þetta var gríðarlegur snjór, meter í affalli, þið getið rétt ímyndað ykkur,“ segir Gestur en rætt var við hann í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Tvö snjóflóð féllu skammt frá Siglufirði um helgina. Hann segir atburðarásina hafa verið þannig að fyrst hafi verið norðaustanátt sem hafi svo breyst í norðvestanátt sem sé þeirra „versta átt“ gagnvart snjósöfnun. „Þá bara í fjöllunum, í bænum og út á strönd og upp á skíðasvæðið. Þetta er það svæði sem er mest vaktað og við erum með alls kyns græjur í þessu. Bæði okkur sjálfa og snjódýptarmæla. Við getum fylgst mjög vel með þessu þegar þetta gerist.“ Greint var frá því um helgina að snjóflóðin hefðu hafnað á varnargarði bak við hús. Leiðagarðar fyrir ofan bæinn hafi þannig vel sannað gildi sitt. Breytt veður Gestur segir veðrið hafa verið samkvæmt spá en að undanfarin ár finnist honum veðuráttirnar hafa verið að breytast. „Það er búið að vera meira í þessum suðlægu áttum, suðvestan og svo norðvestan. Þetta er það sem mér finnst, og kannski fjórar árstíðir sama daginn í veðrinu.“ Hann segir norðvestanáttina versta vegna þess að snjórinn safnast saman í fjöllin Siglufjarðarmegin en að norðaustanáttin geti verið rjúkandi í bænum. Hann segir þetta sjást best með Selskálinni, á sínum átján ára ferli í ofanflóðavakt hafi hann aldrei séð flóð koma þar niður. Á mynd sem deilt var af Gesti um helgina má sjá hann standa við gríðarstóran skafl með mælistöng. Hann segir mælistöngina 2,5 metra og snjórinn hafi verið yfir sex metra hár. Myndin er tekin þar sem snjóflóðið féll og hann segir það koma niður þröngan farveg og á mikilli ferð. Gestur segir alltaf nóg að gera sem snýr að þessu eftirliti. Það sé uppsetning á mælum og eftirlitið, sem sé líka yfir sumarið í rigningu og aftakaveðrum. Gestur segir grannt fylgst með þróun mála á svæðinu. Næsta áhlaup seinnipartinn Á vef Veðurstofunnar segir að enn sé í gildi óvissustig vegna snjóflóðahættu en Gestur segir að viðvörunin verði líklega núna tekin niður á stig þrjú á vegum þannig að það sé hægt að moka. „Svo byrjar næsta áhlaup, það bætir aftur í seinnipartinn í dag,“ segir hann og að þannig verði þetta til fimmtudags. Eftir það eigi ástandið að skána og svo gangi það niður. Eftir það komi næsta lægð með sunnanátt og hláku. „Það er nóg að gera.“
Veður Færð á vegum Fjallabyggð Bítið Tengdar fréttir Holtavörðuheiðin opin á ný Búið er að opna Holtavörðuheiðina eftir lokun í nótt. Enn er ófært um Fróðaárheiði. Hálka og snjóþekja er á flestum leiðum. 16. mars 2026 07:22 Bætir í norðaustanáttina að nýju Alldjúp lægð mjakast nú austur skammt suðaustur af landinu og í kvöld kemur svo lægð sunnan úr hafi og sameinast við hina fyrri suðaustur af landinu og bætir þá í norðaustanáttina að nýju. 16. mars 2026 07:15 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira
Holtavörðuheiðin opin á ný Búið er að opna Holtavörðuheiðina eftir lokun í nótt. Enn er ófært um Fróðaárheiði. Hálka og snjóþekja er á flestum leiðum. 16. mars 2026 07:22
Bætir í norðaustanáttina að nýju Alldjúp lægð mjakast nú austur skammt suðaustur af landinu og í kvöld kemur svo lægð sunnan úr hafi og sameinast við hina fyrri suðaustur af landinu og bætir þá í norðaustanáttina að nýju. 16. mars 2026 07:15