Fernandes einn af örfáum sem kæmist í gullaldarlið United Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. mars 2026 12:33 Aron Jóhannsson er hrifinn af Bruno Fernandes. getty / sýn skjáskot Bruno Fernandes lagði upp tvö mörk í 3-1 sigri Manchester United gegn Aston Villa um helgina. Portúgalinn nálgast óðfluga stoðsendingametið í ensku úrvalsdeildinni og var til umræðu í Sunnudagsmessunni.
Fernandes gaf sínar fimmtándu og sextándu stoðsendingar í deildarleiknum um helgina. Þar með sló hann met David Beckham hjá Manchester United, sem náði einu sinni fimmtán stoðsendingum í deildinni. Svo eru átta leikir eftir af tímabilinu þannig að Fernandes gæti náð tuttugu stoðsendinga metinu, sem er í eigu Kevin De Bruyne og Thierry Henry. Fernandes hefur verið einn besti leikmaður Manchester United síðan hann kom til félagsins árið 2020. Hann er kominn með meira en hundrað mörk og núna hundrað stoðsendingar í öllum keppnum fyrir félagið, en á þeim tíma sem hann hefur verið hjá United hefur liðinu gengið herfilega. „Hann er einn af örfáum sem hafa verið hjá United síðustu tólf, þrettán ár, sem kæmist inn í gullaldarlið United. Hann kæmist inn í hvaða lið sem er. Ég ætla samt ekki að biðja þig um að henda neinum út, því það er nánast ómögulegt, en þetta er leikmaður sem kæmist inn í hvaða lið sem er,“ sagði Aron Jóhansson. Þáttastjórnandinn Kjartan Atli Kjartansson vakti þá upp spurningu um hvort Fernandes væri fórnarlamb slæms gengis hjá liði United. Væri hann á hærri stalli sem leikmaður ef hann hefði spilað fyrir Manchester United á gullaldarárunum undir stjórn Alex Ferguson? „Hundrað prósent… Ég skil alveg þann punkt að hann tuðar ótrúlega mikið og stundum er erfitt að spila með honum. En hann myndi ekkert gera það ef allir leikmenn væru á hans getustigi. Hann hefur verið skör ofar síðustu ár. Það er erfitt fyrir hann að tengja við þessa framherja sem hafa verið, eins og Rasmus Höjlund, af því að hann var bara ekki í sama gæðaflokki og hann. Ef Fernandes væri með Haaland fyrir framan sig þá væri Haaland að skora fleiri mörk en hann gerir núna.“ Klippa: Bruno Fernandes væri byrjunarliðsmaður í öllum liðum Umræðuna úr Sunnudagsmessunni má sjá í spilaranum að ofan.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Fótbolti Fleiri fréttir United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Sjá meira