Guardiola aflýsti æfingu liðsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. mars 2026 18:02 Pep Guardiola ræðir málin við Erling Braut Haaland sem hefur ekki verið að finna markið eftir áramót. Getty/Visionhaus Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, greip til sérstakra aðgerða fyrir úrslitaleik liðsins í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Manchester City hefur nefnilega aflýst æfingu fyrir seinni leikinn sinn í Meistaradeildinni gegn Real Madrid. Upphaflega áttu hinir ljósbláu að æfa klukkan þrjú að íslenskum tíma en í staðinn fengu Erling Braut Haaland og hinar stjörnurnar frí frá æfingu daginn fyrir viðureignina við spænska risann. Það er auðvitað stutt á milli leikja hjá City þessa dagana og líkamlegt álag mikið á leikmönnum liðsins. 🚨 Pep Guardiola decides to give a day off to Manchester City players ahead of return leg vs Real Madrid. pic.twitter.com/QL6OD7JZDQ— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) March 16, 2026 Guardiola telur þetta vera mikilvægan andlegan undirbúning fyrir hið erfiða verkefni sem er fram undan. „Þetta helst í hendur. Hvernig þú spilar, ef þú spilar vel, þá ertu líka andlega sterkur,“ sagði Spánverjinn á blaðamannafundi fyrir stórleikinn gegn Real Madrid. City stendur frammi fyrir gríðarlega erfiðu verkefni í þessum leik, þar sem þeir þurfa að vinna upp 0-3 tap úr leiknum í Madríd. Því eru miklar líkur á að Haaland og félagar verði úr leik í Meistaradeildinni strax í sextán liða úrslitum sem væri mikið áfall fyrir enska stórliðið en heppnin var ekki með þeim að lenda á móti Real Madrid á þessu stigi keppninnar. Leikurinn fer fram klukkan 20:00 á annað kvöld og verður í beinni útsendingu á SÝN Sport Viaplay. Pep Guardiola agrees that Man City will need to give a perfect performance against Real Madrid to qualify for the next round of the Champions League 🎙️ pic.twitter.com/d5bZwl2nIU— Sky Sports News (@SkySportsNews) March 16, 2026
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Manchester City Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Steindi gleymdi klukkunni og teikar aðra keppendur Sport Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna Íslenski boltinn Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tottenham - Aston Villa | Komast heimamenn á blað? Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands JJ Gabriel mættur til Barcelona Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Boehly selur og kveður Chelsea Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Sjá meira