Ísland í skjóli grænnar orku Jón Gunnarsson skrifar 17. mars 2026 06:00 Undanfarnir dagar og vikur hafa enn og aftur minnt okkur á hversu viðkvæm hagkerfi heimsins eru fyrir sveiflum á orkumörkuðum. Verðhækkanir á olíu, gasi og kolum vegna alþjóðlegra átaka hafa sent höggbylgjur í gegnum efnahagslíf þjóða um allan heim. Fyrir Ísland, sem hefur verið brautryðjandi í nýtingu endurnýjanlegrar orku, undirstrikar þetta bæði framsýni fyrri kynslóða í uppbyggingu orkuinnviða og minnir á þá áskorun sem enn blasir við. Frá innrás Bandaríkjanna í Íran þann 28. febrúar hefur verð á Brent-olíu hækkað um 43% þegar þessi grein er skrifuð. Samtímis hefur gasverð á evrópskum mörkuðum rokið upp um tæp 63% og kolaverð hækkað um 16%. Þegar litið er til hækkana frá ársbyrjun, með aðgerðum Bandaríkjahers í Venesúela auk annara yfirstandandi átaka, eru hækkanirnar enn meiri. Þessar sveiflur undirstrika hversu mikilvægt það er fyrir smáar þjóðir eins og Ísland, sem hafa engin áhrif á verðþróun á alþjóðlegum mörkuðum, að draga úr hve háð við erum innfluttu jarðefnaeldsneyti. Skjólið sem græn orka veitir Ísland er að mörgu leyti varið fyrir þessum verðsveiflum vegna þess hve vel við höfum nýtt náttúruauðlindir okkar. Þar sem nánast allri orkuþörf okkar í rafmagni og húshitun er mætt með innlendum, endurnýjanlegum auðlindum, hefur okkur tekist að byggja upp efnahagslegt skjól sem fáar þjóðir búa við. Þetta kemur skýrt í ljós þegar við skoðum samsetningu orkugjafa í endanlegri orkunotkun landa. Því háðara sem land er olíu, gasi og kolum, þeim mun þyngri er kostnaðaraukinn þegar verð á þessum mörkuðum hækkar. Í þessari krísu hefur það þýtt að verðhækkanirnar frá ársbyrjun hafa hlutfallslega leitt til mun meiri orkutengds kostnaðar hjá nágrönnum okkar í Evrópu: Kostnaðarbyrði Dana vegna kaupa á innfluttum orkuafurðum hefur aukist tæplega tvöfalt meira en Íslands, kostnaðarbyrði Hollands hefur aukist rúmlega þrefalt umfram Ísland og meðalaukning í Evrópu er um 2,5 falt meiri en á Íslandi á þessu tímabili. Með öðrum orðum, fyrir hverjar 1.000 krónur sem Ísland tapar vegna verðhækkana tapa Danir um 1.890 krónum, Evrópubúar að meðaltali um 2.570 krónum og Hollendingar 3.280 krónum. Inni í þessari sviðsmynd eru ekki reiknuð þau áhrif sem verðhækkun jarðefnaeldsneyta hefur á raforkuverð, en um þriðjungur raforkuframboðs í Evrópu er framleitt með kolum, olíu eða gasi samkvæmt alþjóðaorkumálastofnuninni (IEA). Ísland ekki ónæmt Þrátt fyrir þessa hlutfallslegu vernd er Ísland langt frá því að vera ónæmt fyrir þessum sveiflum. Samgöngur eru enn að stærstum hluta háðar innfluttri olíu og grunnstoðir íslensks efnahagslífs, svo sem sjávarútvegur og ferðaþjónusta, sjá ekki fram á full orkuskipti í náinni framtíð. Þetta þýðir að í hvert skipti sem verð breytist á alþjóðlegum orkumörkuðum berst það beint inn í hagkerfið okkar með fyrirséðum áhrifum. Á hverju ári flytur Ísland inn jarðefnaeldsneyti sem jafngildir meira en einni milljón tonna af olíu. Á vefnum orkuskipti.is var andvirði þessa innflutnings metið á um 160 milljarða króna í nóvember 2024. Miðað við heimsmarkaðsverð á Brent-olíu í dag nemur innflutningurinn um 230 milljarða króna virði. Þó þessi samanburður sé aðeins gróf nálgun sýnir hann hve mikil áhrif hækkanir á alþjóðlegum orkumörkuðum hafa á þjóðarbúið. Í dag stöndum við frammi fyrir umfangsmiklum orkuskiptum. Markmiðið er að rafvæða samfélagið og draga jafnt og þétt úr notkun innflutts jarðefnaeldsneytis þar til við verðum óháð því. Við höfum áður farið í gegnum umfangsmikil orkuskipti á Íslandi. Fyrstu orkuskiptin urðu um aldamót 20. aldar þegar rafmagn var fyrst tekið í notkun til lýsingar og stuttu síðar til framleiðslu og verðmætasköpunar. Önnur orkuskiptin tóku lengri tíma og hófust í upphafi fjórða áratugar síðustu aldar þegar jarðvarmi fór smám saman að leysa olíu af hólmi í húshitun og varð síðan allsráðandi í kjölfar olíukreppanna á áttunda áratugnum. Öll áttu þessi skref það sameiginlegt að vera drifin áfram af bæði efnahagslegum og samfélagslegum hvötum og ávinningurinn reyndist gríðarlegur fyrir íslenskt samfélag og umhverfi. Full orkuskipti eru síðasta púslið Við megum því ekki bara líta á orkuskiptin sem umhverfis- og loftslagsmál heldur einnig sem hagsmunamál sem varðar okkur öll. Það á jafnt við um efnahag, samfélag og þjóðaröryggi. Á meðan við erum enn háð innfluttu jarðefnaeldsneyti verður íslenskt hagkerfi áfram berskjaldað fyrir verðbreytingum á alþjóðlegum orkumörkuðum. Vissulega eru orkuskiptin að verulegu leyti háð erlendri tækniþróun og því eðlilegt að innleiðing nýrrar tækni taki mið af því hvenær hún verður raunhæf og hagkvæm. En þegar slík tækifæri gefast þurfum við að vera duglegri að grípa þau því ávinningurinn er svo gríðarlegur. Með hverju skrefi sem við tökum í átt að minni olíuinnflutningi minnkar viðkvæmni hagkerfisins gagnvart utanaðkomandi sveiflum. Um orkuskiptin og mikilvægi þess að efla áfallaþol ómissandi innviða verður meðal annars fjallað á ársfundi Samorku sem fram fer í Borgarleikhúsinu kl. 13 í dag. Fundurinn er opinn öllum og þátttaka er ókeypis og skráning fer fram á Samorka.is. Höfundur er verkefnastjóri greininga hjá Samorku. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orkumál Orkuskipti Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson Skoðun Skoðun Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar