Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Samúel Karl Ólason skrifar 16. mars 2026 17:48 Dagurinn þykir hafa verið nokkuð góður á mörkuðum í Bandaríkjunum í dag. Sá besti frá því árásir á Íran hófust. AP/Seth Wenig Olíuverð hefur lækkað á mörkuðum í dag og verðbréfavísitölur vestanhafs hafa hækkað. Dagurinn á Wall Street ku vera sá besti frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran.
S&P 500 vísitalan hækkaði um eitt prósent í dag og stefndi í besta dag vísitölunnar í fimm vikur. Svipaða sögu var að segja af Dow Jones, sem hafði hækkað um 0,8 prósent og Nasdaq sem var upp um 1,3 prósent. Þetta er að mestu rekið til lækkunar á olíuverði í dag. Brent-olíuvísitalan, sem er alþjóðlega viðmiðið, lækkaði um 0,9 prósent og stendur í 102,2 dölum á tunnu, eftir að hafa farið upp í 106,5, þegar mest var á undanförnum dögum. Samkvæmt AP fréttaveitunni lækkaði olíuvísitalan í Bandaríkjunum um 3,4 prósent og stendur í 95,36 dölum. Fyrir rúmum tveimur vikum, áður en Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran, var olíuverð í um sjötíu dölum á tunnu. Hér á Íslandi er ekki svipaða sögu að segja af mörkuðum og vestanhafs, þar sem nánast allar tölur Kauphallarinnar eru rauðar eftir daginn. Síldarvinnslan er eina félagið sem hækkaði í dag en það var um 0,95 prósent í tiltölulega umfangslitlum viðskiptum. Markaðsvendingar þessar má að miklu leyti rekja til lokunar Hormússunds en um það sund fer rúmur fimmtungur af olíu heimsins. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur talað fyrir því um helgina og í dag að mynda einskonar bandalag um opnun sundsins en ráðamenn í bandalagsríkjum Bandaríkjanna hafa flestir sýnt því takmarkaðan áhuga. Sjá einnig: Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps CNBC hefur eftir Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, að Bandaríkjamenn hafi hleypt írönskum olíuflutningaskipum út úr Persaflóa. Það hafi verið gert með því markmiði að létta á þrýstingi á olíumörkuðum. AP segir að hlutabréfamarkaður í Bandaríkjunum hafi í gegnum árin sýnt að hann jafni sig tiltölulega fljótt eftir átök í Mið-Austurlöndum, svo lengi sem olíuverð haldist ekki hátt til langs tíma. Fjárfestar búist við því að svipað verði upp á teningnum að þessu sinni. Síðan átökin hófust hafa markaðir tekið miklar sveiflur í báðar áttir.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Bensín og olía Mest lesið Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent