Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Samúel Karl Ólason skrifar 17. mars 2026 13:13 Farand- og flóttamenn frá Sýrlandi og Líbíu kalla eftir aðstoð frá spænskum hjálparstarfsmönnum undan ströndum ítölsku eyjarinnar Lampedusa á Miðjarðarhafi. Hundruð farandfólks hafa horfið í hafið á á undanförnum vikum. AP/Francisco Seco Farandfólk hverfur í massavís á Miðjarðarhafinu og ríkisstjórnir á svæðinu leyna upplýsingum um hvörfin og björgunarstörf. Fólk þetta er að reyna að komast frá Afríku og Mið-Austurlöndum til Evrópu en hundruð hverfa í hafið á leiðinni.
Upphaf þessa árs er talið það mannskæðasta á Miðjarðarhafinu þegar kemur að farandfólki. Rannsakendur Sameinuðu þjóðanna hafa, samkvæmt AP fréttaveitunni, staðfest að það sem af er þessu ári hafa að minnsta kosti 682 farandmenn horfið á Miðjarðarhafinu. Fjöldinn er talinn mun hærri í rauninni. Allt síðasta ár er talið að að minnsta kosti 1.500 manns hafi horfið, samkvæmt Sameinuðu þjóðunum. Nú þegar er fjöldinn kominn í að minnsta kosti fjögur hundruð á þessu ári. Þá segir fréttaveitan að hjálpar- og mannréttindasamtök eigi erfitt með að halda utan um umfang dauðsfalla á Miðjarðarhafinu þar sem yfirvöld á Ítalíu, Möltu og í Túnis hafi dregið úr flæði upplýsinga um björgunarstörf og sjávarskaða á þessari hættulegustu leið farandfólks í heimi. Þögnin hefur einnig gert rannsakendum Sameinuðu þjóðanna erfitt að skoða stöðuna á svæðinu ítarlega. Fréttir um farandfólkið og banaslys rata sjaldan á síður fjölmiðla vegna skorts á upplýsingum og hversu erfitt það mun vera orðið fyrir fréttafólk að fá staðfestingu á fregnum þessum. Eftir að óveður fór um strandlengju Líbíu í janúar fóru forsvarsmenn mannréttindasamtaka að vara við því að rúmlega þúsund manns væru týndir. Lík rak á land og sáust einnig fljóta um á hafi úti en yfirvöld á svæðinu hafa neitað að tjá sig um málið. Blaðamenn AP sendu ítrekaðar fyrirspurnir til stjórnvalda Ítalíu, Möltu og Túnis um af hverju upplýsingum væri ekki lengur deilt með fjölmiðlum og hjálparsamtökum en fengu ekki nein svör. Fimm fyrirspurnir voru sendar á strandgæslu Ítalíu en engin svör fengust. Einu sinni svaraði einhver í símann hjá þeim og sagðist sá ekki geta veitt neinar upplýsingar. Þeir einu sem svöruðu einhverjum spurningum voru Frontex, en í svari þeirra kom fram að átta bátar hefðu sést á svæðinu þegar óveðrið fór yfir. Sex munu hafa verið stöðvaðir af Ítölum en ekki er vitað hvað varð um hina tvo. Einn maður fannst á floti á Miðjarðarhafinu þann 22. janúar, eftir að óveðrið fór yfir svæðið. Sá sagðist hafa verið með um fimmtíu manns á ferðinni en lík sumra þeirra voru sýnileg á myndbandi sem tekið var upp þegar manninum var bjargað um borð í fraktskip.
Flóttamenn Ítalía Túnis Líbía Malta Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira