Hamingja á stafrænum tímum Ingrid Kuhlman skrifar 20. mars 2026 08:32 Er ég að nota tæknina eða er hún að nota mig? Rólegt kvöld. Síminn í hendinni. Fingurinn rennur ósjálfrátt niður skjáinn. Myndir af ferðalögum, árangri og brosandi fjölskyldum birtast hver á fætur annarri. Ein mynd í viðbót. Eitt myndband enn. Við erum stöðugt tengd án þess að upplifa raunveruleg tengsl. Það er því ekki tilviljun að þema alþjóðadags hamingjunnar í ár er tengsl samfélagsmiðla og hamingju. Spurningin er þó ekki einföld: Hvernig getur tækni sem lofar nánd og innblæstri grafið undan vellíðan? Svarið liggur ekki í tækninni sjálfri heldur í þeim samfélagslega og sálfræðilega jarðvegi sem hún sprettur upp úr. Þegar tæknin styrkir tengsl Samfélagsmiðlar móta hugmyndir okkar um hvað telst eðlilegt og eftirsóknarvert og magna upp það sem fyrir er, bæði styrkleika og veikleika. Rannsóknir sýna þó að þeir geta einnig eflt tengsl, sérstaklega hjá jaðarsettum hópum eða fólki sem býr við félagslega einangrun. Martin Seligman, einn af frumkvöðlum jákvæðrar sálfræði, hefur bent á að góð félagsleg tengsl séu einn sterkasti forspárþáttur hamingjunnar. Þegar samfélagsmiðlar eru notaðir með ásetningi til raunverulegra samskipta geta þeir styrkt þessa mikilvæga stoð. Munurinn liggur þó í notkuninni. Virk samskipti hafa mun jákvæðari áhrif en endalaust skrun. Það er ekki það sama að tala við fólk og fylgjast með lífi þess úr fjarlægð. Samanburðurinn grefur undan sjálfsmyndinni Samfélagsmiðlar virkja einnig djúpstæða tilhneigingu okkar til samanburðar. Samkvæmt félagslegu samanburðarkenningunni, sem sálfræðingurinn Leon Festinger setti fram, berum við okkur saman við aðra til að meta eigið gildi. Á samfélagsmiðlum, þar sem flest sýna sín bestu augnablik, verður samanburðurinn auðveldlega skakkur: við berum hversdagsleika okkar saman við hátinda annarra. Sálfræðingurinn Jean Twenge hefur bent á tengsl milli mikillar samfélagsmiðlanotkunar og aukinnar vanlíðanar meðal ungmenna. Þótt orsakasamhengið sé flókið bendir margt til þess að stöðug útsetning fyrir slípaðri mynd af „fullkomnu lífi“ annarra geti grafið undan sjálfsmynd og vellíðan. Áhrif samfélagsmiðla eru þó ekki eins hjá öllum. Þau ráðast meðal annars af aldri, sjálfsmynd og því hvort notkunin snýst um tengsl eða endalaust samanburðarskrun. Hönnun sem heldur athyglinni Hönnun miðlanna skiptir einnig máli. „Læk“-hnappar, tilkynningar og sífellt nýtt efni virkja umbunarkerfi heilans með breytilegri umbun, sama kerfi og gerir fjárhættuspil ávanabindandi. Við vitum aldrei hvenær næsta viðurkenning birtist eða hvaða efni bíður okkar. Þessi óvissa gerir það erfitt að leggja símann frá sér. Það sem birtist okkur er heldur ekki hlutlaus mynd af heiminum. Algóritmar velja það efni sem líklegt er til að vekja viðbrögð og halda athygli okkar sem lengst. Tilfinningar eins og reiði, öfund og hneykslun dreifast því oft hraðar en yfirvegun og dýpt. Sýnileikamenning og áhrif á einbeitingu Á samfélagsmiðlum erum við ekki eingöngu notendur heldur sýningarstjórar eigin sjálfsmyndar. Við veljum hvaða myndir, orð og augnablik fá að sjást og smám saman getur sjálfsmatið orðið háð viðbrögðum annarra. Í menningu þar sem sýnileiki hefur orðið eins konar gjaldmiðill verður staðfesting mælanleg í tölum. Þegar viðbrögð eru færri en við væntum getur það skapað tilfinningu um að vera ósýnilegur eða ekki nógu merkilegur. Tæknin magnar þannig upp þörf okkar fyrir viðurkenningu án þess að tryggja raunverulega nánd. Samfélagsmiðlanotkun getur einnig haft áhrif á svefn, einbeitingu og getu okkar til að vera til staðar í augnablikinu. Þegar skjánotkun fyllir hvert hlé dagsins verður erfiðara að finna kyrrð, hvíld og samfellda athygli. Meðvituð notkun: Þrjú skref Spurningin er ekki hvort við eigum að yfirgefa samfélagsmiðla heldur hvernig við notum þá með meiri meðvitund. Þrjú skref geta hjálpað: Hlusta á eigin upplifun: Hvernig líður mér eftir notkun? Finn ég fyrir innblæstri eða tómleika? Setja skýr mörk og minnka truflun: Slökkva á óþarfa tilkynningum, skapa símalaus tímabil og rækta rými fyrir raunveruleg samskipti, til dæmis á kaffihúsi, í göngutúr eða við eldhúsborðið. Velja meðvitað hvað við fylgjumst með: Fólk og miðla sem efla skilning, gleði og merkingu frekar en samanburð og neikvæðni. Við þurfum líka, sem samfélag, að ræða siðferðilega hönnun stafrænnar tækni. Þegar tekjur samfélagsmiðlafyrirtækja byggjast á því að halda athygli okkar sem lengst, verðum við í raun hráefni í viðskiptalíkani sem byggir á athygli okkar og gögnum. Hamingja á stafrænum tímum Hamingja byggir á tengslum, sjálfsvirðingu og tilgangi. Samfélagsmiðlar geta annað hvort styrkt þessa þætti eða grafið undan þeim. Á stafrænum tímum verður það hluti af sjálfsumhyggju að vernda athygli okkar, sjálfsmynd og tengsl. Að lokum snýst þetta um stjórn á athyglinni. Er ég að nota tæknina eða er hún að nota mig? Höfundur er leiðbeinandi hjá Þekkingarmiðlun og með meistaragráðu í hagnýtri jákvæðri sálfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar