Innlent

Bein út­sending: Opinn fundur um samgönguáætlun

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra verður gestur fundarins.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra verður gestur fundarins. Vísir/Bjarni

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis heldur opinn fund til að fjalla um samgönguáætlun. Innviðaráðherra verður viðstaddur fundinn.

Fundurinn verður haldinn í Smiðju við Tjarnagötu klukkan níu og er opinn almenningi á meðan húsrúm leyfir. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra er gestur nefndarinnar á fundinum.

Eyjólfur var boðaður til að svara spurningum um forgangsröðun jarðganga en í samgönguáætluninni setti hann gerð Fljótaganga í forgang en í fyrri samgönguáætlun var gert ráð fyrir að Fjarðaheiðargöng yrðu næst á dagskrá. Þá eru Fjarðagöng og Súðavíkurgöng saman í öðru til þriðja sæti forgangslistans.

Sjá nánar: Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga

Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu hér fyrir neðan:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×