Viðskipti erlent

Á­rásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp

Samúel Karl Ólason skrifar
Áhrifin af samdrætti í olíu- gasframleiðslu geta verið sérstaklega slæm í Asíu.
Áhrifin af samdrætti í olíu- gasframleiðslu geta verið sérstaklega slæm í Asíu. AP/Ahn Young-joon

Íranir hafa gert þó nokkrar árásir á olíu- og jarðgasvinnsluinnviði í Mið-Austurlöndum í morgun. Yfirvöld í Sádi-Arabíu segja drónaárás hafa verið gerða á olíuvinnslustöð við Rauða hafið og ráðamenn í Kúveit segja elda hafa kviknað eftir árásir á tvær olíuvinnslur þar í landi í morgun. Einnig var gerð árás á stærstu jarðgasvinnslu heims í Katar í gær.

Bæði verð á olíu og gasi hefur tekið mikinn kipp upp á við í morgun.

AP fréttaveitan segir að verð á tunnu af Brent-hráolíu, sem er heimsviðmiðið, hafi náð 114 dölum í morgun. Það samsvarar um 57 prósenta hækkun frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran fyrir um tveimur og hálfri viku.

Þetta er í kjölfar þess að Ísraelar gerðu í gær árás á jarðgassvæði og vinnslu Írana við Persaflóa í gær en það var í fyrsta sinn sem árásir voru gerðar á orkuframleiðsluinnviði þar í landi. Þangað til höfðu Bandaríkjamenn og Ísraelar forðast árásir á slíka innviði af ótta við að Íranir myndu svara fyrir sig með árásum á olíu- og gasframleiðslu í nágrannaríkjum sínum, með tilheyrandi áhrifum, sem gætu verið langvarandi, á markaði.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í nótt að Ísraelar myndu ekki gera sambærilegar árásir aftur, nema Íranir hættu ekki árásum á orkuinnviði annarra ríkja. Ef þær árásir hættu ekki myndu Bandaríkjamenn gera umfangsmiklar árásir á orkuframleiðsluinnviði í Íran og sprengja Pars-gassvæðið, eitt það stærsta í heimi, upp.

Trump hélt því einnig fram að Bandaríkjamenn hefðu ekki verið upplýstir um árásir Ísraela í gær.

Sjá einnig: Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran

Varnarmálaráðuneyti Sádi-Arabíu sagði frá því í morgun að einn sjálfsprengidróni hefði lent á Samref-olíuvinnslustöðinni í hafnarborginni Yanbu. Ein skotflaug frá Íran, sem stefndi einnig í átt að borginni, var skotin niður í morgun.

Hve umfangsmikill skaðinn á olíuvinnslustöðinni er liggur ekki fyrir enn.

Í Kúveit kviknuðu eldar í tveimur olíuvinnslustöðvum í morgun eftir árásir frá Íran. Þar er um að ræða olíuvinnslustöðvar í al-Abdallah og Mina al-Ahmadi. Þar er sömuleiðis óljóst hve mikill skaðinn er.

Í gær gerðu Íranir árásir á jarðgasvinnslur í Ras Laffan í Katar en það eru vinnslur sem nýta einnig Suður-Pars gassvæðið, sem Katarar deila með Írönum. Þær árásir ollu töluverðum skaða en Wall Street Journal segir að verð á jarðgasi í Evrópu hafi hækkað um meira en fjórðung í kjölfar þeirra fregna.

Allt að fimmtungur alls jarðgass heims er framleiddur í Ras Laffan.

Frá því flest ríki Evrópu hættu að kaupa jarðgas af Rússum hófu þau í staðinn að kaupa mikið magn af gasi frá Katar. Mörg ríki Asíu, eins og Indland, Kína, Japan og Suður-Kórea, reiða sig einnig á gaskaup frá Katar.

Þegar kemur að jarðgasi búa ríki heimsins ekki yfir neyðarbirgðum, eins og gjarnan á við með olíu, og geta takmarkanir á framleiðslu því haft mjög hraðar afleiðingar á verð og birgðakeðjur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×