Innleiðingarblekkingin Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar 19. mars 2026 10:03 Margt er notað þessa dagana til að hræða fólk frá því að vilja taka jákvæða afstöðu til áframhaldandi aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Eitt af því sem notað er má kalla „innleiðingarblekkinguna“ og snýst hún um hversu mikið af gerðum Evrópusambandsins Ísland hafi innleitt sem EES ríki. Innleiðingarblekkingin á uppruna sinn í fyrirspurn Sigurðar Kára Kristjánssonar, fyrrverandi alþingismanns Sjálfstæðisflokksins, frá árinu 2004 til þáverandi utanríkisráðherra, Davíðs Oddssonar heitins, sem var, eins og mörg vita, því miður einn helsti andstæðingur Evrópusambandsaðildar Íslands til áratuga. Innleiðingarblekkingin var samin til að fá ákveðna niðurstöðu í pólitískri umræðu þess tíma, sem gekk út á hversu mikið af Evrópureglum Ísland væri að innleiða sem EES ríki miðað við það sem aðildarríkin innleiddu. Hún svaraði fyrirspurn Sigurðar Kára á þá leið að telja meira og minna allar gerðir sem Evrópusambandið hafði sent frá sér á tíu ára tímabili (1994-2004), m.a. mikinn fjölda gerða sem flest ESB ríki innleiddu ekki heldur, (sem dæmi þarf oft lagalega ákvörðun hjá Evrópusambandinu t.d. þegar ákveðið er að niðurgreiða einstaka búvörur til einstakra bænda í einstaka aðildarríkjum) en vantaldi hundruð ef ekki þúsundir gerða sem innleiddar höfðu verið á annan hátt en í gegnum EES samninginn, t.d. þær sem afgreiddar voru með sérstökum hætti fyrir sameiginlegu EES nefndinni, sem og þær sem fylgdu EES samningnum sjálfum í upphafi. Í innleiðingarblekkingunni, sem hefur nú verið dregin fram í umræðuna á ný, er talað um að Ísland hafi innleitt um 6,5% af slíkum gerðum og þar með látið að því liggja að allt tal um að Ísland sé að stórum hluta þegar í Evrópusambandinu sé rangt. Eiríkur Bergmann, prófessor, skoðaði í doktorsrigerðinni sinni frá árinu 2009 þessi mál afar vandlega og komst að þeirri niðurstöðu að staðan væri afar sambærileg í aðildarríkjum Evrópusambandsins þegar kemur að innleiðingu alls þess sem Evrópusambandið sendir frá sér. Hann komst að því að sænski fræðimaðurinn Fredrik Sterzel hafði beitt sömu aðferðafræði árið 2001 við að telja það hlutfall af regluverðarverki sem Svíþjóð hafði, sem aðildarríki, innleitt og fékk þá svipaða útkomu fyrir ESB ríkið Svíþjóð og utanríkisráðuneyti Davíðs fékk fyrir Ísland. Útfrá þeirri niðurstöðu mátti hinsvegar sjá að Ísland, utan Evrópusambandsins en í EES, hafði innleitt tæplega 86% af þeim gerðum sem Svíþjóð sem aðildarríki hafði innleitt. Fræðimenn frá öðrum Evrópusambandsríkjum, t.d. Hollandi komust að sambærilegri niðurstöðu. Niðurstaðan er einfaldlega sú að stundum er hægt að nota tölfræði til að blekkja fólk og innleiðingarblekkingin er skólabókardæmi um hvernig það er gert. Eftir stendur að Ísland innleiðir, sem EES ríki, megnið af þeim gerðum sem snerta innri markað Evrópusambandsins. Evrópusambandið sjálft telur að þetta séu um 75-80% af þeim gerðum. Við Íslendingar erum hinsvegar í þeirri stöðu að þurfa að taka upp reglur sem við höfum á engu stigi máls haft aðild að að búa til. Það er óþolandi staða fyrir fullvalda ríki, eins og ítrekað hefur komið fram t.d. í skýrslum norsku ríkisstjórnarinnar um EES, en Noregur er í sömu stöðu og Ísland hvað þetta varðar. Þessu höfum við tök á að breyta og fyrsta skrefið í átt til þeirrar valdeflingar okkar sem þjóðar er hægt að taka með því að styðja það að Ísland klári aðildarsamninga við Evrópusambandið. Áfram Ísland! Höfundur er formaður Evrópuhreyfingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Magnús Árni Skjöld Magnússon Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar