Viðskipti innlent

Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans

Árni Sæberg skrifar
Kvikmyndaskóli Íslands var til húsa að Suðurlandsbraut undir það síðasta.
Kvikmyndaskóli Íslands var til húsa að Suðurlandsbraut undir það síðasta. Vísir/Vilhelm

Rétt tæplega tíu milljónir króna fengust upp í kröfur í þrotabú Kvikmyndaskóla Íslands, sem námu í heild tæpum 217 milljónum króna.

Í auglýsingu þess efnis í Lögbirtingablaðinu segir að þrotabúið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 5. mars í fyrra. Lýstar kröfur í búið hafi samtals numið 216.699.185 krónum.

Skiptum búsins hafi verið lokið þann 11. mars 2026. Skiptum hafi lokið með úthlutunargerð úr þrotabúinu, en samkvæmt henni hafi greiðst að fullu búskröfur að fjárhæð 3.423.732 króna. 

Upp í forgangskröfur hafi greiðst 6.428.429 króna, sem sé 14,43 prósent af heildarfjárhæð samþykktra forgangskrafna. Ekkert hafi fengist greitt upp í almennar kröfur eða eftirstæðar kröfur.

Þremur vikum eftir að búið var tekið til gjaldþrotaskipta keypti þekkingarfyrirtækið Rafmennt rekstur Kvikmyndaskólans og hóf kennslu í húsnæði Stúdíó Sýrlands þann 8. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×