Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Lovísa Arnardóttir skrifar 19. mars 2026 15:04 Grímur er nú orðinn stjórnarformaður. Aðsend Grímur Sæmundsen tók í dag, á aðalfundi Bláa lónsins, sæti í stjórn félagsins og var kjörinn stjórnarformaður en auk hans skipa stjórnina næsta starfsárið þau Ágústa Johnson, Erla Ósk Ásgeirsdóttir, Jón Sigurðsson og Ragnar Guðmundsson. Greint er frá þessu í tilkynningu frá Bláa lóninu.
Þar kemur fram að Grímur er stofnandi Bláa Lónsins hf. og gegndi störfum sem forstjóri félagsins frá stofnun þess, árið 1992, fram til aðalfundarins í dag en Sigríður Margrét Oddsdóttir hefur nú tekið við af honum sem forstjóri. Hún lét af störfum sem framkvæmdastýra Samtaka atvinnulífsins fyrir stuttu og tók Bjarni Benediktsson, fyrrverandi ráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, við af henni. „Ég er virkilega stoltur af því sem við höfum byggt upp og með sama hugarfari munum við halda áfram að byggja upp nýja áfangastaði víða um land og sækja fram á þeim mörkuðum sem við störfum. Með því að horfa til langs tíma, byggja á gæðum, hönnun og þeim einstöku eiginleikum sem Ísland hefur að bjóða er framtíð félagsins björt, tækifærin eru vissulega til staðar.“ segir Grímur Sæmundsen í tilkynningunni. Í tilkynningu um aðalfund Bláa lónsins kemur einnig fram að rekstrartekjur Bláa lónsins hafi numið 156 milljónum evra sem samsvarar 22,5 milljörðum íslenskra króna. Til samanburðar voru tekjurnar 115 milljónir evra árið áður, sem samsvarar 15,6 milljörðum króna. „Bláa lónið er einstakt fyrirtæki og nátengt orðspori Íslands á heimsvísu; það er heiður að leiða félagið inn í næsta kafla sögu þess., segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, í tilkynningu. Sigríður Margrét hefur nú tekið við sem forstjóri. Aðsend Þá segir í tilkynningu að EBITDA félagsins nam €29,4 milljónum. Árið 2024 nam hún €9,6 milljónum og að hagnaður af rekstri á árinu nam €6,6 milljónum sem samsvarar tæpum milljarði íslenskra króna. Tap á árinu 2024 nam €7,6 milljónum. Eiginfjárhlutfall Bláa Lónsins hf. var 52% við árslok til samanburðar við 53% árið á undan. Eignir í árslok námu €423,5 milljónum sem samsvarar um 61 milljarði íslenskra króna. Skattspor Bláa Lónsins hf. nam rúmlega 4,3 milljörðum króna á árinu sem samanstendur m.a. af staðgreiðslu launa, VSK og öðrum opinberum gjöldum. Stöðugildi í árslok 2025 voru 806 en voru 727 í lok ársins á undan. Félagið varði um 150 milljónum króna til ýmissa samfélagsverkefna á árinu.
Bláa lónið Vistaskipti Tengdar fréttir Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Sigríður Margrét Oddsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Bláa lónsins hf. frá 16. mars næst komandi. Hún hefur undanfarin ár verið framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Grímur Sæmundsen, sem verið hefur forstjóri Bláa lónsins frá stofnun þess 1992 lætur þá af störfum en tekur sæti í stjórn félagsins á næsta aðalfundi. 6. janúar 2026 13:09 Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira
Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Sigríður Margrét Oddsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Bláa lónsins hf. frá 16. mars næst komandi. Hún hefur undanfarin ár verið framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Grímur Sæmundsen, sem verið hefur forstjóri Bláa lónsins frá stofnun þess 1992 lætur þá af störfum en tekur sæti í stjórn félagsins á næsta aðalfundi. 6. janúar 2026 13:09