Stjórnvöld sögð skoða hernám eða umsátur um Kharg-eyju Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. mars 2026 13:14 Kharg-eyja er gríðarlega mikilvæg efnahag Írana. AP/Planet Labs Stjórnvöld í Bandaríkjunum eru sögð velta því fyrir sér að hernema eða gera umsátur um Kharg-eyju, þar sem 90 prósent alls olíuúflutnings frá Íran fer um og þar sem um 30 milljónir tunna eru geymdar.
Frá þessu greinir Axios og hefur eftir fjórum ónefndum heimildarmönnum. Tilgangurinn yrði að þrýsta á Írani að greiða fyrir umferð um Hormuz-sund. „Hann vill Hormuz opið,“ er haft eftir einum heimildarmanninum, en „hann“ er Donald Trump Bandaríkjaforseti. „Ef hann þarf að taka Kharg-eyju til að láta það gerast þá gerist það. Ef hann ákveður að ráðast inn frá ströndinni, þá gerist það. En sú ákvörðun hefur ekki verið tekin.“ Annar sagði Trump myndu senda hermenn inn í Íran ef þess þyrfti og benti á að það hefðu allir aðrir forsetar gert á einhverjum tímapunkti. Málið væri vissulega viðkvæmt, pólitískt séð, en Trump myndi gera „það sem er rétt“. Kharg-eyja Hormússund JEMEN S.A.F. TYRKLAND SÝRLAND SÁDI-ARABÍA ÓMAN ÍRAK ÍRAN JÓRDANÍA EGYPTALAND LÍBANON ÍSRAEL KÚVEIT KÝPUR PALESTÍNA Kharg-eyja Teheran Hormússund BAREIN KATAR Bandaríkjamenn gerðu árásir á hernaðarinnviði á Kharg-eyju í síðustu viku og Trump sagði í framhaldinu að ef til vill myndi hann endurtaka leikinn, „bara til gamans“. Þá hótaði hann því að sprengja upp orkuinnviðina á eyjunni ef Íranir hindruðu umferð um Hormuz-sund. Íranir hafa vissulega gert árásir á skip á sundinu en það eru ekki síður hótanir þeirra um árásir sem hafa fælt menn frá því að fara um sundið. Aðeins um hundrað skip hafa siglt þar frá því að átökin hófust, flest með tengsl við Íran. Frekari árásir á Kharg-eyju myndu skapa enn meiri óvissu og hækkun á olíuverði. Þá myndi líklega koma upp nokkurs konar pattstaða, þar sem Íranir gætu framleitt olíu en ekki komið henni frá sér og Bandaríkjamenn hefðu yfirráð yfir flutningsleiðinni en enga olíu til að flytja. Þá er ljóst að ástandið myndi valda Íran stórkostlegum efnahagslegum skaða, sem myndi ganga gegn öllum hugmyndum um mögulega frjálst og velmegandi samfélag í landinu.
Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Orkumál Bensín og olía Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Starmer segir af sér Erlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Hrafni bjargað af þaki Byko Innlent Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Innlent Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Innlent Fleiri fréttir Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Sjá meira