Góð áminning um sanngirni Helga Rósa Másdóttir, Magnús Þór Jónsson og Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifa 21. mars 2026 09:03 Í sömu viku og fjármálaráðherra lagði fram frumvarp á Alþingi sem á að gera slökum stjórnendum auðveldara að reka ríkisstarfsmenn gaf héraðssaksóknari út 60 ákærur fyrir ofbeldisbrot eða hótanir gegn opinberum starfsmönnum. Mörg brotanna varða ofbeldi í garð lögreglumanna, fangavarða og heilbrigðisstarfsfólks sem hafa t.d. verið kýld, slegin, sparkað í þau eða hrækt á þau. Þarna er einnig að finna mál eins og sprengjuhótun á bráðamóttökunni og hótanir í garð fjölskyldu lögreglumanns. Opinber þjónusta stendur og fellur með fólkinu sem sinnir henni. Álagið á starfsfólk hefur stóraukist, víða er undirmönnun viðvarandi og sífellt erfiðara er að halda úti þeirri grundvallarþjónustu sem samfélagið treystir á. Frá Landspítala berast reglulega neyðarköll þar sem starfsfólk lýsir ástandi líkt og í stríði, öll rými séu yfirfull og ekki takist að tryggja öryggi sjúklinga og starfsfólks. Lögreglumenn og fangaverðir hafa ítrekað vakið athygli á auknu ofbeldi í starfi. Kennarar eru í dag ekki aðeins kennarar heldur líka ráðgjafar, tengiliðar og lausnaraðilar í flóknum aðstæðum en á sama tíma er ofbeldi og áreiti í starfi þeirra og utan vinnustaðar raunverulegt vandamál. Þetta eru störf sem krefjast fagmennsku, ábyrgðar og mikillar seiglu. En starfsfólkið bendir á að þau séu ekki vélmenni. Þau eru manneskjur sem vinna við erfiðar aðstæður og geta gert mistök. Þegar mistök verða - eins og óhjákvæmilega gerist þar sem fólk vinnur undir álagi - þarf að bregðast við af sanngirni og fagmennsku. Leiðbeina, styðja og læra af reynslunni. Áminningarskyldan hefur gegnt því hlutverki að vera einn liður í því ferli. Hún er ekki hindrun, heldur öryggisventill sem tryggir að brugðist sé rétt við áður en gripið er til alvarlegri aðgerða. Það er því erfitt að sjá hvernig afnám hennar á að styrkja opinbera þjónustu. Þvert á móti blasir við að slík breyting gæti grafið undan trausti, aukið óöryggi og gert opinber störf síður aðlaðandi – á sama tíma og við glímum nú þegar við skort á starfsfólki. Stjórnvöld ættu að staldra við. Í stað þess að senda ríkisstarfsmönnum þau skilaboð að það þurfi að vera auðveldara að reka þau þarf að takast á við raunverulegar áskoranir: bæta starfsaðstæður, draga úr álagi og gera opinber störf eftirsóknarverð. Það er lykillinn að sterkri og traustri opinberri þjónustu og þar með betra og öruggara samfélagi. Við gerum þá kröfu að frumvarpið verði dregið til baka. Jafnframt teljum við tímabært að horfa til þess hvernig megi styrkja ráðningarvernd launafólks á almennum vinnumarkaði og draga úr valdaójafnvægi milli launafólks og stjórnenda þannig að Ísland nálgist þau réttindi sem tíðkast á hinum Norðurlöndunum. Að lokum hvetjum við fólk til að kynna sér málið betur á góðáminning.is en þar má sjá viðbrögð ríkisstarfsmanna við aðför ríkisstjórnarinnar að réttindum þeirra. Helga Rósa Másdóttir er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Magnús Þór Jónsson er formaður Kennarasambands Íslands og Sonja Ýr Þorbergsdóttir er formaður BSRB. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sonja Ýr Þorbergsdóttir Magnús Þór Jónsson Stéttarfélög Helga Rósa Másdóttir Mest lesið Halldór 19.09.2026 Halldór Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír. Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Skoðun Vefurinn kom á undan félaginu Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Macklemore, Robert Kraft og sniðganga fyrir Palestínu Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun „Við ætlum að læra af þessu“ – enn einu sinni! Davíð Bergmann skrifar Sjá meira
Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun