Innlent

Fáskrúðsfjarðargöngum lokað vegna umferðaróhapps

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Fáskrúðsfjarðargöngum var lokað rétt fyrir klukkan níu. Myndin er úr safni.
Fáskrúðsfjarðargöngum var lokað rétt fyrir klukkan níu. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Fáskrúðsfjarðargöngum var lokað rétt fyrir klukkan níu vegna umferðaróhapps.

„Það virðist einn bíll hafa lent í óhappi og göngunum var lokað í kjölfarið,“ segir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi. 

Á vefsíðu Vegagerðarinnar, umferðin.is, má sjá að göngunum var lokað tíu mínútur í níu í morgun. Vinna er í gangi á vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×