„Stundum þarftu að auka spennuna til að draga úr spennunni“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 22. mars 2026 16:52 Fjármálaráðherrann Scott Bessent vildi ekki fara nánar út í hernaðaráætlanir Trumps. Getty/Tom Williams Scott Bessent fjármálaráðherra Bandaríkjanna sagði í viðtali hjá NBC fyrr í dag að stundum þyrfti að auka spennuna til að draga úr henni.
Tilefni þessara ummæla var spurning blaðamanns um hvort Donald Trump Bandaríkjaforseti væri að stigmagna ófriðinn í Mið-Austurlöndum. Trump sagði fyrir helgi að hann væri að íhuga að draga úr hernaði í Íran því Bandaríkjaher væri nálægt því að ná markmiðum sínum. Um helgina hefur þó ekkert gerst sem bendir til þess að dregið hafi úr spennunni – þvert á móti hafa hótanir gengið á víxl. Bessent var inntur eftir viðbrögðum við þessu; hvers vegna ekki færi saman hljóð og mynd í tali Trumps um að draga úr spennu. Hann svaraði því til að eitt útilokaði ekki annað. Stundum þurfi að auka spennu til að draga úr henni. Þegar gengið var á Bessent um hvort Bandaríkin myndu koma herliði fyrir við Hormússund til að tryggja að leiðin væri greið fyrir örugga skipaflutninga þá svaraði hann því til að hann myndi ekki úttala sig um hernaðaráætlanir Trumps. „Eins og Trump forseti gerir alltaf – hann heldur öllum möguleikum opnum.“ Seint í gærkvöldi hafði Trump í hótunum við Írani og gaf þeim 48 klukkustundir til að tryggja opnun sundsins fyrir skipaumferð og að leiðin um það yrði örugg og greið – ellegar hlytu Íranir verra af. Trump sagði að Bandaríkjaher myndi varpa sprengjum á orkuver í Íran og ráðast fyrst á þau mikilvægustu ef Íranir færu ekki eftir fyrirmælunum. Írönsk hafa nú svarað Trump í sömu mynt og sagst gera „óafturkræfar“ skemmdir á mikilvægum orkuinnviðum í Mið-Austurlöndum geri Trump alvöru úr hótunum sínum og ein af afleiðingunum yrði að olíuverði verði þrýst enn frekar upp. Forseti íranska þingsins kom þessu á framfæri í færslu á samfélagsmiðlinum X.
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Tengdar fréttir Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Donald Trump Bandaríkjaforseti segist gefa Íran 48 klukkustundir til þess að opna Hormússundið að fullu, án nokkurrar ógnar. Verði það ekki gert muni Bandaríkin hæfa og gjöreyða ýmsum orkuinnviðum Írana. 22. mars 2026 08:35 Íhugar að draga úr hernaði í Íran Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir Bandaríkjaher nálægt því að ná markmiðum sínum í Íran, og segist huga að því að draga úr hernaði þar sem hófst í lok síðasta mánaðar. 21. mars 2026 08:06 Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Starmer segir af sér Erlent Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Innlent Hrafni bjargað af þaki Byko Innlent Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Innlent Fleiri fréttir Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Sjá meira
Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Donald Trump Bandaríkjaforseti segist gefa Íran 48 klukkustundir til þess að opna Hormússundið að fullu, án nokkurrar ógnar. Verði það ekki gert muni Bandaríkin hæfa og gjöreyða ýmsum orkuinnviðum Írana. 22. mars 2026 08:35
Íhugar að draga úr hernaði í Íran Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir Bandaríkjaher nálægt því að ná markmiðum sínum í Íran, og segist huga að því að draga úr hernaði þar sem hófst í lok síðasta mánaðar. 21. mars 2026 08:06