Heilbrigðiskerfi framtíðarinnar Ólafur Eysteinn Sigurjónsson skrifar 23. mars 2026 10:01 Heilbrigðiskerfið í dag stendur frammi fyrir miklum áskorunum. Fólk lifir lengur, langvinnum sjúkdómum fjölgar, álag á starfsfólk eykst og kröfur um betri og hraðari þjónustu aukast. Í umræðu um heilbrigðismál er oftast rætt um fjármagn, mannafla og húsnæði, vissulega mikilvægir þættir, en ein forsenda gleymist gjarnan og er ekki síður mikilvæg: Menntunina sem þarf til að byggja upp heilbrigðiskerfi framtíðarinnar. Ef við ætlum að mæta öllum þeim áskorunum sem heilbrigðiskerfið okkar stendur frammi fyrir í dag dugar ekki að hugsa um heilbrigðisþjónustu með sama hætti og áður. Tæknibreytingar eru þegar farnar að hafa áhrif á greiningar, meðferðir, eftirlit og samskipti innan kerfisins. Gervigreind, gagnagreining, fjarheilbrigðisþjónusta og stafrænar lausnir eru ekki lengur fjarlæg framtíðarsýn heldur þróun sem er hafin. Tæknibreytingar leysa þó ekkert einar og sér. Til þess að nýta þær til góðs þarf fólk sem bæði skilur tæknina og heilbrigðiskerfið. Fólk sem getur unnið á mörkum verkfræði, tölvunarfræði, gagnavísinda og heilbrigðisvísinda og þróað lausnir sem eru ekki aðeins tæknilega öflugar heldur líka öruggar, siðferðislega ábyrgar, notendavænar og raunhæfar í klínísku umhverfi. Þess vegna gegnir menntun á háskólastigi í stafrænni heilbrigðistækni og heilbrigðisverkfræði lykilhlutverki þegar kemur að heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar. Í HR er boðið upp á meistaranám í stafrænni heilbrigðistækni og grunn og meistaranám í heilbrigðisverkfræði og þar erum við að svara skýrri samfélagsþörf. Við erum að mennta sérfræðinga sem geta þróað lausnir framtíðarinnar fyrir heilbrigðiskerfið, unnið með gögn, stafræna innviði, tæki, hugbúnað og greiningarlausnir og á sama tíma skilið þarfir sjúklinga, starfsfólks og kerfisins í heild. Þetta er mikilvægt því heilbrigðistækni verður sífellt stærri hluti af daglegri starfsemi heilbrigðisþjónustunnar. Stuðningur við ákvarðanir byggður á gögnum, sjálfvirkari ferlar, snjallari greining og einstaklingsmiðaðri þjónusta munu skipta æ meira máli. Þá dugar ekki að treysta eingöngu á innfluttar lausnir eða utanaðkomandi sérfræðiþekkingu. Við verðum að byggja upp eigin þekkingu og eigin getu. Og við þurfum að einblína á getu samfélagsins til að bæta heilbrigðisþjónustu með markvissum hætti. Á Íslandi eigum við að geta verið í fremstu röð á þessu sviði. Hér eru stuttar boðleiðir milli háskóla, heilbrigðisstofnana og atvinnulífs og við búum að mikilli þekkingu og góðri reynslu af því að tengja saman rannsóknir, nýsköpun og þjónustu. En það gerist ekki af sjálfu sér. Það þarf markvissa menntun sem undirbýr nemendur undir raunveruleg verkefni framtíðar. Þar hefur Háskólinn í Reykjavík verið í fararbroddi. Skólinn hefur byggt upp sterkt umhverfi á sviði tækni, verkfræði og nýsköpunar með aukinni tengingu við heilbrigðisgeirann. Framtíð heilbrigðisþjónustu ræðst ekki aðeins af því hvaða tæki eða kerfi við kaupum, heldur hvort við höfum fólk með þekkingu til að þróa, aðlaga og nýta tæknina af ábyrgð. Menntun á þessu sviði er því ekki aðeins mikilvægt hagsmunamál fyrir heilbrigðiskerfið heldur einnig fyrir atvinnulíf og samfélagið allt. Heimurinn kallar eftir lausnum á sviði stafrænnar heilsu, lækningatækni og heilbrigðisverkfræði. Ísland hefur alla burði til að taka þátt í þeirri þróun, bæði í rannsóknum og atvinnusköpun, en það gerist aðeins ef við menntum fólk sem getur tengt saman vísindi, tækni, heilbrigði og nýsköpun. Við stöndum því frammi fyrir skýru vali: Ætlum við að fylgjast með þróuninni, eða taka þátt í að móta hana? Menntun á háskólastigi í stafrænni heilbrigðistækni og heilbrigðisverkfræði er ekki munaður. Hún er nauðsyn. Og þar hefur Háskólinn í Reykjavík sýnt að hann ætlar sér að vera í fararbroddi. Höfundur er sviðsforseti Tæknisviðs og aðstoðarrektor rannsókna, nýsköpunar og atvinnulíftengsla við HR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar