Fluginu aflýst eftir að vélin rann út af akbraut Agnar Már Másson skrifar 23. mars 2026 20:23 „Það er búið að vera erfitt að koma tækjum að vélinni til að draga hana,“ segir upplýsingafulltrúi Isavia. Nú er vissulega komin hreyfing á flugvélina á ný, eftir að hafa setið föst í tæplega þrjá tíma. Samsett Mynd Flugi Icelandair til London hefur verið aflýst eftir að flugvélin rann út af akbraut á Keflavíkurflugvellinum í dag. Farþegar hafa setið í vélinni síðan um klukkan 16 en illa hefur gengið að koma dráttarvélum á staðinn. Þá þykir ekki líklegt að það takist að fljúga til Heathrow-flugvallar fyrir lokun. Flugvél rann í hálku á akbraut á Keflavíkurflugvelli um klukkan 17 í dag en gular viðvaranir hafa verið í gildi á Suðurnesjum og víðast hvar á landinu. Afar slæmt skyggni var á vellinum. Vélin, sem er af gerðinni Airbus A341, var fullbókuð en engan sakaði. Til stóð að draga vélina og framkvæma svo á henni skoðun og afísingu þar til hún gæti svo tekið aftur á loft. Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir aftur á móti að fluginu hafi verið aflýst vegna þess að ekki takist að fljúga vélinni í tæka tíð á Heathrow-flugvöll í London vegna opnunartíma á breska flugvellinum. Sömuleiðis hefur fluginu frá Heathrow til Keflavíkur, sem átti að vera með sömu vél, einnig verið aflýst. „Það er búið að vera erfitt að koma tækjum að vélinni til að draga hana,“ segir Guðni enn frekar. Það sé því útséð að það náist að draga vélina, gera á henni skoðun og svo afísa hana. Mokstursbíl hefur verið ekið hring eftir hring á ak- og flugbrautum Keflavíkurflugvallar í dag. „Núna er bara verið að koma vélinni að flugstöðinni. Farþegum verður komið í annað flug til London,“ heldur hann áfram en ekki liggi fyrir hvernig farþegum verður komið á áfangastað. Farþegar muni fá senda nýja ferðaáætlun. Gabriela Krista, farþegi um borð í vélinni, segir að farþegar sitji enn um kyrrt og bíði þess að vera dregnir að flugstöð. Þegar Vísir sló á þráðinn til hennar klukkan 20 var dráttarbíll nýkominn að vélinni. Hún segir að engin gremja sé í farþegum, að minnsta kosti ekki lengur eftir að þeir fengu loksins að borða. Veistu meira um málið eða áttu myndefni? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Isavia Reykjavík Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira
Flugvél rann í hálku á akbraut á Keflavíkurflugvelli um klukkan 17 í dag en gular viðvaranir hafa verið í gildi á Suðurnesjum og víðast hvar á landinu. Afar slæmt skyggni var á vellinum. Vélin, sem er af gerðinni Airbus A341, var fullbókuð en engan sakaði. Til stóð að draga vélina og framkvæma svo á henni skoðun og afísingu þar til hún gæti svo tekið aftur á loft. Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir aftur á móti að fluginu hafi verið aflýst vegna þess að ekki takist að fljúga vélinni í tæka tíð á Heathrow-flugvöll í London vegna opnunartíma á breska flugvellinum. Sömuleiðis hefur fluginu frá Heathrow til Keflavíkur, sem átti að vera með sömu vél, einnig verið aflýst. „Það er búið að vera erfitt að koma tækjum að vélinni til að draga hana,“ segir Guðni enn frekar. Það sé því útséð að það náist að draga vélina, gera á henni skoðun og svo afísa hana. Mokstursbíl hefur verið ekið hring eftir hring á ak- og flugbrautum Keflavíkurflugvallar í dag. „Núna er bara verið að koma vélinni að flugstöðinni. Farþegum verður komið í annað flug til London,“ heldur hann áfram en ekki liggi fyrir hvernig farþegum verður komið á áfangastað. Farþegar muni fá senda nýja ferðaáætlun. Gabriela Krista, farþegi um borð í vélinni, segir að farþegar sitji enn um kyrrt og bíði þess að vera dregnir að flugstöð. Þegar Vísir sló á þráðinn til hennar klukkan 20 var dráttarbíll nýkominn að vélinni. Hún segir að engin gremja sé í farþegum, að minnsta kosti ekki lengur eftir að þeir fengu loksins að borða. Veistu meira um málið eða áttu myndefni? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið eða áttu myndefni? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Isavia Reykjavík Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira