Náttúran þarf virkt lýðræði Guðrún Schmidt skrifar 25. mars 2026 12:32 Lýðræði er meira en einungis lýðræðislegar kosningar á nokkurra ára fresti. Þannig er virk þátttaka almennings við ákvarðanatökur sem varða m.a. almannahagsmuni eins og náttúruvernd og loftslagsmál einn af lykilþáttum við framkvæmd lýðræðis. Heimspekingurinn Henry Alexander Henrysson skrifar í grein um lýðræði að lýðræði er m.a. „leið til að haga sameiginlegum málum okkar á þann veg að einn eða fáir einstaklingar geti ekki tekið gerræðislegar ákvarðanir fyrir hönd almennings.“ Einnig skrifar Henry í sömu grein „ … að lýðræði geti styrkst við meiri tillitssemi, hógværð og auðmýkt fyrir hlutverkinu – að frekja og yfirgangur séu merki um lýðræðislegar blindgötur sem leiða samfélög frá lausnum og til forherðingar.“ Samþjöppun valds Með tapi umhverfisráðuneytisins vegna sameiningar í umhverfis-, orku og loftslagsráðuneyti hefur farið fram ákveðin samþjöppun valds þar sem ýmis mál innan sama ráðuneytis stangast á innbyrðis. Þannig virðist að ráðherrann hafi vald til þess að setja ákveðnar áherslur sem styrkja eitt hlutverk hans á kostnað annarra. Áherslur núverandi umhverfis- orku og loftslagsráðherra eins og hann hefur m.a. lýst yfir á síðastliðnu iðnþingi eru að undir hans verkstjórn sé ráðuneytið hagvaxtarráðuneyti. Hann er að vinna að því að ryðja burt „hindrunum, óþarfa reglubyrði og skriffinnsku“ til þess að geta ýtt undir vöxt og verðmætasköpun. Með því að einfalda regluverkið, gera breytingar á faglega unnum niðurstöðum Rammaáætlunar og á vinnu hennar og boða rýmri heimild ríkisins til eignarnáms til uppbyggingar orkuinnviða eru stjórnvöld á hættulegri braut við að skerða lýðræðið í landinu. Þó svo að allar þessar áætlanir fari í gegnum þingræðislega meðferð. Lýðræði Stjórnvöld verða að tryggja ótvíræðan rétt almennings til að hafa eitthvað um það að segja hvernig sameiginlegar auðlindir eru nýttar og hvernig gengið er um sameiginleg land- og náttúrugæði. Það kemur m.a. skýrt fram í Árósasamningum sem Ísland hefur átt aðild að síðan 2011. Samningurinn á að tryggja lýðræðislegt ferli í gegnum þennan rétt almennings til að taka þátt í ákvarðanatöku, fá nauðsynlegar upplýsingar og að njóta réttlátrar málsmeðferðar. Áhrif hagsmunaaðila Það er ekkert leyndarmál að víða í vestrænum ríkjum hafa bein og óbein stjórnmálaleg afskipti og áhrif stórra hagsmunaaðila veikt lýðræðislega ferla. Sérstaklega hefur samþjöppun eignarhalds á fyrirtækjum á fáeinar hendur haft áhrif á virkni lýðræðis. Medici-vítahringurinn útskýrir þessa hnignun lýðræðis. Þeir sem þegar eru ríkir og valdamiklir, t.d. eigendur stórra fyrirtækja, geta haft áhrif á stjórnmálin og reglurnar sem eru settar þar á þann hátt að þeir hagnast enn meira fjárhagslega. Fyrirtækja- og einstaklingsauður eru þannig nátengdir áhrifum sem þessir einstaklingar geta haft á ákvarðanatöku stjórnmálamanna. Þegar stórt er spurt Hvernig ætli þetta sér hér á Íslandi? Hvaða hagsmuna eru stjórnvöld að gæta ef það er áætlun þeirra að minnka möguleika borgara á að taka virkan þátt í ákvörðunarferlum um mál sem snerta sameiginlegar náttúruauðlindir þjóðar? Hvernig ætlar m.a. umhverfis-, orku og loftslagsráðherrann að tryggja að ákvarðanir sem fela í sér mikil inngrip í íslenska náttúru eins og t.d. virkjanir og aðrar stórframkvæmdir verði ekki teknar á grunni fjölbreytilegra og mjög sterkra sérhagsmuna í stað almannahagsmuna? Höfundur starfar hjá Landvernd Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar