Neita að afhenda dóma lögreglumanna Árni Sæberg skrifar 26. mars 2026 13:37 Aníta Rut í Héraðsdómi Reykjaness. Vísir/Anton Brink Héraðsdómur Reykjaness neitar að afhenda dóma í málum tveggja lögreglumanna, þrátt fyrir skýrar reglur um rétt almennings um að fá afhent afrit úr dómabókum. Aníta Rut Harðardóttir var sakfelld og dæmd til sektargreiðslu fyrir óheimilar uppflettingar í málaskrá lögreglu en hinn lögreglumaðurinn var sýknaður.
Aníta Rut var ákærð fyrir að hafa flett upp málum í upplýsingakerfi lögreglunnar, LÖKE, sem tengdust nákomnum vandamanni hennar. Hún var grunuð um að hafa skoðað upplýsingar um fólk og mál þeim tengd, án þess að uppflettingarnar tengdust starfi hennar og þannig misnotað sér stöðu sína. Hún opnaði sex mál og skoðaði 23 bókanir tengdar þeim. Hún hefur áður vakið mikla athygli í fjölmiðlum, þegar myndir birtust af henni með umdeilda fána á einkennisbúningi sínum. Þá hefur hún verið áminnt fyrir niðrandi ummæli um þolendur kynferðisbrota. Reyndur í skyggingum Hinn lögreglumaðurinn var ákærður fyrir að hafa látið koma fyrir hlerunarbúnaði í bifreið manns sem var til rannsóknar, án dómsúrskurðar. Hann hafi hljóðritað það sem fram fór í bifreiðinni og brotið þannig gegn friðhelgi einkalífs eigandans. Samkvæmt heimildum fréttastofu er hann reyndur í svokölluðum skyggingum, rannsóknarúrræði sem felst í stöðugu eftirliti með ferðum þess sem grunaður er um brot. „Ekki er hægt að afhenda dóma í þessum málum“ Dómar í málum lögreglumannanna voru kveðnir upp þann 19. mars síðastliðinn en þeir hafa ekki verið birtir á vef dómstólanna. Ríkisútvarpið greindi frá niðurstöðum þeirra. Vísir óskaði eftir því að fá afrit af dómunum afhent en var neitað um þá beiðni. „Ekki er hægt að afhenda dóma í þessum málum. Í máli S-2904/2025 [Anítu] var dómfelldu gerð sektarrefsing og verður dómur því ekki birtur frekar en aðrir slíkir dómar. Þá tók dómstjóri ákvörðun í máli S-2905/2025 [hins lögreglumannsins] að dómur yrði ekki birtur vegna viðkvæmra upplýsinga sem víða koma fram í dóminum, sbr. 7.gr. reglna Dómstólasýslunnar nr. 3/2022,“ segir í svari dómstólsins við beiðninni. Vísa í aðrar reglur en þær sem gilda Þar vísar dómstóllinn í reglur um Dómstólasýslunnar um birtingu úrlausna á vef dómstólanna en um afhendingu dóma gilda reglur Dómstólasýslunnar um aðgang almennings að gögnum og upplýsingum um einstök mál hjá Landsrétti og héraðsdómstólum eftir að þeim er endanlega lokið nr. 6/2024, að sögn Dómstólasýslunnar. Þar segir eftirfarandi í 4. gr. : Almenningur á rétt á að fá afhent gegn greiðslu gjalds afrit af ákæru og greinargerð ákærða sem og staðfest endurrit úr dómabók og af úrskurðum og ákvörðunum sem færðar hafa verið í þingbók. Undantekning á þeim rétti í 2. mgr. 4.gr. er tæmandi talin og gildir aðeins um ákæru og greinargerð. Tölvubréfi Vísis til dómstólsins þar sem þessum sjónarmiðum er komið á framfæri hefur ekki verið svarað.
Dómsmál Dómstólar Lögreglan Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira