Uppgjör: Álftanes-Stjarnan 124-115 | Enduðu á sigri á nágrönnunum Ísak Orri Leifsson Schjetne skrifar 26. mars 2026 20:55 Justin James var atkvæðamikill í kvöld. Vísir/Anton Brink Álftanes lagði Stjörnuna að velli 124-115 í æsispennandi leik þar sem heimamenn sneru taflinu við á lokakaflanum eftir að hafa verið undir stærstan hluta leiksins. Jafnt frá fyrstu mínútu Leikurinn fór jafnt af stað og liðin skiptust á körfum framan af. Staðan var 12-12 eftir fimm mínútna leik og 19-17 skömmu síðar í vel stigamiklum leik þar sem bæði lið nýttu færin sín vel. Stjarnan var þó skrefinu á undan undir lok leikhlutans og leiddi 27-30 þegar Álftanes fór í síðustu sóknina. Þar steig Sigurður Pétursson upp og minnkaði muninn með tveggja stiga körfu rétt fyrir lok leikhlutans. Staðan eftir fyrsta leikhluta: Álftanes 29 - 30 Stjarnan. Stjarnan hélt frumkvæðinu Stjörnumenn héldu áfram að setja tóninn í öðrum leikhluta þar sem Seth Christian LeDay og Luka Gasic voru í lykilhlutverkum og leiddu liðið meðal annars í 42-49. Álftanes tók leikhlé í stöðunni 47-54 þegar bláklæddu gestirnir virtust vera með yfirhöndina. Sigurður Pétursson hélt þó heimamönnum inni í leiknum með öflugri frammistöðu og var kominn með 17 stig á 17 mínútum. Í hálfleik var hann stigahæstur með 20 stig en Gasic skammt undan með 18 fyrir Stjörnuna. Staðan í hálfleik: Álftanes 59 - 63 Stjarnan. Stjarnan hélt forskotinu þrátt fyrir pressu Stjörnumenn byrjuðu seinni hálfleik af krafti og komust í 72-81 og síðan 75-84 á fyrstu mínútunum. Dúi Þór gaf gestunum góða orku, meðal annars með troðslu í upphafi leikhlutans. Álftanes neitaði þó að gefast upp og minnkaði ítrekað muninn niður í tvö til þrjú stig. Þegar um tvær mínútur voru eftir af leikhlutanum var staðan orðin 87-88 og allt opið, en Stjarnan náði að halda forskotinu fram yfir enda leikhlutans.Mögnuð endurkoma Álftaness Stjarnan virtist ætla að sigla sigrinum heim í fjórða leikhluta þegar liðið komst í 89-100 snemma og síðar 91-104 eftir um 33 mínútna leik. Leikmenn Álftaness gáfust hins vegar ekki upp og hófu að saxa á forskotið. Munurinn minnkaði niður í 103-108 þegar sex mínútur voru eftir og í 109-110 þegar fjórar mínútur lifðu leiks. Heimamenn tóku þá yfir leikinn, komust yfir 114-112 og kláruðu leikinn af öryggi á lokamínútunum. Lokastaða: Álftanes 124 -115 Stjarnan. Atvik leiksins: Þegar Hilmir Árnason gjörsamlega kveikti í stúkunni hjá heimamönnum með þristi til að minnka muninn niður í fimm stig þegar sex mínútur lifðu leiks, 103-108. Stjörnur: Liðsfélagarnir Dúi Þór og Justin James fá stjörnustimpilinn í dag þrátt fyrir að vera ekki í Stjörnunni, þeir skiluðu samtals 51 stigi fyrir heimamenn, flott frammistaða. Dómarar: Þeir Davíð Kristján, Stefán & Friðrik stóðu sig með prýði í kvöld á flautunni, flott dagsverk hjá þeim. Stemning og umgjörð: Það var virkilega góð stemning í stúkunni í kvöld, trommusveitir Álftaness og Stjörnunnar létu sig ekki vanta. Þrátt fyrir staðfestingu á stuttu tímabili stóðu Álftnesingar fast við bakið á sínum mönnum og studdu við þá allar 40 mínútur leiksins. Umgjörðin var til fyrirmyndar hér í Kaldalónshöllinni í kvöld, góðir hamborgarar á grillinu og starfsfólk var virkilega almennilegt og sinnti sínu verki fagmannlega. Hjalti Vilhjálmsson, þjálfari Álftaness.Vísir / Anton Brink Hjalti: Gaman að sigra síðasta leikinn, hvað þá gegn Stjörnunni „Það er gaman að sigra síðasta leikinn, hvað þá gegn Stjörnunni. Það var ekki mikið um varnarleik í dag.“ Sagði Hjalti Þór þjálfari Álftaness eftir að hafa betur í nágrannaslag gegn Stjörnunni, 124-115, í lokaumferð Bónus-deildar karla. Sigurinn hjálpaði þó lítið stöðu liðsins á töflunni sem þarf að horfa á átta liða úrslitin sem eru fram undan. „Við héldum þeim í 17 stigum í síðasta leikhluta, það er allt í lagi.“ Ekki var mikið að frétta af varnarleik beggja liða í kvöld í leik sem endaði með 239 stig samtals, en heimamenn náðu þó að komast í veg fyrir nokkur mikilvæg stig hjá Stjörnunni. „Við fórum að setja smá effort (metnað) varnarlega, fórum aðeins að ná að pikka þá betur upp og setja aðeins meira á þá, á meðan við fórum að senda boltann meira og láta hann ganga, við vorum að drippla og hnoðast of mikið, eins og Stólaleikurinn fór í. Við náðum allavega að snúa því til baka.“ Eins og áður var minnst á er lið Álftaness komið í sumarfrí þrátt fyrir sigur í kvöld. „Nú er það bara pælingar og spjöll næstu daga.“ Dúi Þór Jónsson og félagar í Álftanesi hafa átt erfitt uppdráttar í Bónus-deildinni.vísir/Hulda Margrét Dúi: „Ég ákvað bara að byrja að láta vaða“ Álftnesingurinn Dúi Þór Jónsson kíkti í viðtal eftir góða frammistöðu í kvöld. „Vonbrigði að tímabilið sé að klárast núna, við vildum klárlega meira en það er gott að hafa gefið fólkinu okkar eitthvað smá gleði fyrir sumarfríið.“ Dúi skilaði 24 stigum fyrir heimamenn og átti lykilþátt í þessari rosalegu endurkomu þegar um sex mínútur lifðu leiks. „Ég ákvað bara að byrja að láta vaða.“ Snemmkomið sumarfrí fyrir Álftanes, á meðan hitt liðið í Garðabæ er að fara í úrslitakeppni „Það er mjög svekkjandi, það eru vonbrigði að tímabilið sé að klárast núna, bara svekkjandi að geta ekki verið með í þessari veislu sem er fram undan.“ Baldur Þór Ragnarsson er þjálfari Stjörnunnar.Vísir / Anton Brink Baldur Þór: Varnarleikurinn var bara grínþáttur „Brjálaður, fyrstu viðbrögð“ hafði Baldur Þór Ragnarsson þjálfari Stjörnunnar að segja eftir að Stjarnan missteig sig á lokametrum leiksins, frá 109-112 yfir í 124-115 á sex mínútna kafla. „Varnarleikurinn var djók hjá öllum sem komu að þessum leik, bara grínþáttur. Alveg sama hvað við tölum um þá virðast menn bara vera að bíða eftir að fretta í körfuna þarna hinum megin.“ Tvö töp í síðustu þrem leikjum Stjörnunnar í deild þetta tímabilið, spurning hvort undanfarin úrslit hafi áhrif á úrslitakeppnina sjálfa, fyrir þá bláklæddu. „Ég meina, seinast þegar við fórum í playoffs (umspil) þá töpuðum við seinustu tveimur leikjum fyrir það, þannig það er eins gott að menn nái þessu úr kerfinu og geri betur á öllum vígstöðvum. Það er ekki hægt að vera með neinar afsakanir yfir þessu.“ Bónus-deild karla UMF Álftanes Stjarnan