Leik lokið: ÍA-Ármann 103-107 | Ármenningar kláruðu sitt Sverrir Mar Smárason skrifar 26. mars 2026 21:04 Bragi Guðmundsson var með 25 stig í kvöld. Vísir / Anton Brink Skagamenn tóku á móti Ármanni í AvAir-höllinni á Akranesi í kvöld í lokaumferð Bónusdeildar karla. Fyrir leikinn var ljóst að ÍA væri fallið úr deildinni en Ármanni dugði sigur til þess að halda sér uppi. Gestirnir úr Laugardalnum byrjuðu mun betur og komust snemma 9 stigum yfir en við það vöknuðu heimamenn og fyrsti leikhluti spilaðist nokkuð jafnt eftir það. Ármann hélt þó sinni forystu og staðan var 27-32, gestunum í vil eftir fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta juku gestirnir við forystu sína. Um miðbik leikhlutans tóku þeir algjörlega yfir leikinn og komust mest 18 stigum yfir. Gestirnir í Ármann voru greinilega vel samstilltir og ákveðnir í að halda sæti sínu í Bónusdeildinni. Stig og framlag dreifðist vel á liðið í fyrri hálfleik og allir voru að leggja hönd á plóg. Staðan í hálfleik var 47-60, Ármanni í vil. Jafnræði var með liðunum í þriðja leikhluta. Darryl Morsell ákvað að taka málin í sínar hendur og gerði vel fyrir heimamenn sem minnkuðu muninn. Á sama tíma ákvað Bragi Guðmundsson að stíga upp og hélt gestunum alltaf nokkrum stigum yfir. Staðan eftir þriðja leikhluta var 69-79, gestunum í vil. Heimamenn mættu af miklum krafti út í fjórða leikhluta og áfram hélt Darryl Morsell að bæta stigum á töfluna. Skagamenn minnkuðu muninn niður í tvö stig áður en Ármenningar tóku við sér. Það var gríðarleg spenna og mikill hiti í stúkunni þegar leið á leikinn. Leikur Grindavíkur og Þórs var þó löngu liðinn þar sem Grindvíkingar unnu sigur og sæti Ármanns í deildinni var tryggt. Ármann vann að lokum 4 stiga sigur á Akranesi 103-107 og því verður væntanlega fagnað vel í Laugardalnum um helgina. Atvik leiksins Troðsla kom frá Braga Guðmundssyni þegar 2 mínútur voru eftir af leiknum. Það var svona „statement“ augnablik enda fagnaði hann því vel þegar stúkan trylltist. Á þeim tímapunkti var Þór búið að tapa gegn Grindavík og sætið í deildinni tryggt. Stjörnur og skúrkar Daniel Love og Bragi Guðmundsson voru bestir í liði Ármanns í kvöld. Love með 24-4-7 og 31 framlagsstig en Bragi 25-6-2 og 25 framlagsstig. Darryl Morsell og Gojko Zudzum stóðu upp úr hjá ÍA. Morsell með 34-7-4 og 31 framlagsstig en Zudzum með 27-12-1 og 31 framlagsstig. Dómararnir Það var mikill hiti á dómurunum í kvöld. Stuðningsmenn Ármanns voru duglegir að kvarta undan ákvörðunum dómaranna en unnu að lokum sigur í leiknum svo það kom ekki að sök. Í nokkur skipti var undirritaður sammála stúkunni. Umgjörð og stemning Mjög vel mætt frá gestunum og sýndi það mikilvægi leiksins þeirra megin. Mætingin frá stuðningsmönnum ÍA hefði mátt vera betri í síðasta leik Bónus deildarinnar í bili en kannski eðlilegt þegar liðið er fallið. Óskar Þór: Ég held að þetta félag fari ekki aftur á sama stað í 1. deildinni eins og það var Óskar Þór Þorsteinsson, þjálfari ÍA, var þungur eftir tap sinna manna í lokaleik tímabilsins. Fyrir leikinn var ljóst að liðið væri fallið en tapið þungt engu að síður. „Ég er bara þungur. Mikið af hugsunum í gangi bara almennt um tímabilið, sem ég held að sé bara eðlilegt eftir svona tímabil og svona endir á því. Þessi leikur var bara mjög skrýtinn. Skrýtið að undirbúa sig fyrir svona þar sem þú ert ekki að spila upp á neitt nema bara stolt. Það er upp og niður hversu mikið við börðumst í dag en heilt yfir er allt í lagi,“ sagði Óskar Þór. Skagamenn sýndu góðan anda í síðari hálfleik, lögðust ekki niður heldur bitu frá sér og sýndu að þeir vildu enda tímabilið með sigri. „Það er bara vandamál sem hefur verið í öllum leikjum að við erum of kaflaskiptir. Það eru kaflar í hverjum leik þar sem við erum með baráttu og erum að keyra. Við erum bara ekki nógu stöðugir. Sérð hvernig við byrjum leikinn í dag, hversu marga leiki í vetur höfum við byrjað 10-0 eða 10-2 undir? Hvern einasta leik nánast. Auðvitað tekur það á og það er lítið hægt að gera í því núna,“ sagði þjálfari ÍA. Breytingin á ÍA sem körfuboltafélagi hefur verið mikil frá því að liðið tryggði sér sæti í Bónusdeildinni fyrir ári síðan. Óskar horfir björtum augum á framtíð félagsins. „Það hefur orðið mikil kúltúrbreyting. Við fáum nýtt hús, mikið af nýju fólki sem hefur komið inn í starfið og yngri flokkarnir hafa stækkað mikið. Ég held að þetta félag fari ekki aftur á sama stað í 1. deildinni eins og það var. Það er kannski það jákvæða í þessu. Nú erum við komnir með bragðið af Bónusdeildinni og hvað þarf að gera til þess að komast hingað. Það fer bara undirbúningur í gang við að komast aftur á þennan stað,“ sagði Óskar Þór að lokum. Bónus-deild karla ÍA Ármann