„Þetta eru tveir úrslitaleikir“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 27. mars 2026 08:00 Arnar Pétursson sér stór tækifæri í næstu leikjum íslenska landsliðsins. vísir Landslið Íslands í handbolta mætir Færeyjum og Portúgal eftir páska í undankeppni EM kvenna. Leikirnir munu ákvarða hvort stelpurnar okkar komist á næsta Evrópumót, hvort þær fari í umspil eða hvort þær detti bara úr leik.
Leikmannahópurinn var tilkynntur á blaðamannafundi HSÍ í gær. Þar leyndist engum hversu mikilvægir þessir tveir leikir væru og landsliðsþjálfarinn, Arnar Pétursson, lítur á þetta sem tvo úrslitaleiki. „Þetta eru það klárlega… Þetta eru tveir úrslitaleikir en eins og alltaf þá byrjum við á einum leik [gegn Færeyjum 8. apríl],“sagði Arnar og tók fram að sá möguleiki er til staðar að Ísland tapi öðrum hvorum leiknum en komist samt í umspilið. Frítt verður inn á Ásvelli í seinni leiknum, þegar Ísland tekur á móti Portúgal þann 12. apríl. „Það gefur okkur alveg ofboðslega mikið ef við fyllum húsið og ég trúi ekki öðru en að það gerist. Það skiptir okkur alveg gríðarlegu máli að fá stuðning. Við höfum fundið það í þessum heimaleikjum uppi á Ásvöllum, í Þjóðarhöllinni okkar, að þegar það er vel mætt þá er það auka innspýting sem gerir ofboðslega mikið fyrir okkur.“ Eitt af spurningamerkjunum varðandi liðsvalið var markmaðurinn Hafdís Renötudottir, hún fékk höfuðhögg í síðasta landsliðsverkefni og hefur ekki spilað síðan. En Hafdís var viðstödd fundinn í gær og væntir þess að vera klár í slaginn þegar að því kemur. Katrín Tinna Jensdóttir hefur sömuleiðis jafnað sig af höfuðhögginu sem hún fékk. Nokkrir aðrir leikmenn eru þó enn að glíma við meiðsli. Vinstri hornakonan Dana Björg Guðmundsdóttir meiddist á dögunum og verður frá út tímabilið, miðjumaðurinn Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín er að glíma við meiðsli í baki og hægri skyttan Thea Imani Sturludóttir er enn að glíma við tognun í læri. Þá er hægri hornakonan Þórey Anna Ásgeirsdóttir komin í barneignaleyfi. „Þannig er það bara. Þetta er staðan sem við erum að fást við og ég er búinn að velja mjög sterkan hóp, gott lið, og hlakka til að takast á við verkefnið sem bíða okkar… Það er klárlega markmiðið [að komast inn á EM]. Það væri frábært og við erum auðvitað að stefna þangað. Við erum samt alltaf að horfa á hlutina og frammistöðurnar í heild sinni. En auðvitað dreymir okkur um að komast á fjórða stórmótið í röð.“ TV KLIPPA EMBED Fjallað var um komandi leiki hjá stelpunum okkar í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan. Hér fyrir neðan má svo finna viðtalið við Arnar Pétursson í heild sinni. Klippa: Úrslitaleikir framundan gegn Færeyjum og Portúgal
Landslið kvenna í handbolta EM kvenna í handbolta 2026 Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Fleiri fréttir Get unnið tíunda leikinn í röð í undankeppni HM „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Bjóða upp á barna FanZone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Sjá meira