Rýmka bílastæðareglur en höfnuðu tillögu sem gengur lengra Birgir Olgeirsson skrifar 27. mars 2026 13:01 Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna er formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar. Vísir/Vilhelm Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti í vikunni tillögu um fleiri bílastæði við nýbyggingar í Reykjavík en hafnaði kröfu Sjálfstæðisflokksins um að ganga enn lengra og miða almennt við að minnsta kosti eitt bílastæði á hverja íbúð. Málið fer nú áfram til borgarráðs.
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur samþykkti í vikunni tillögu um rýmri bílastæðareglur við nýbyggingar í borginni en hafnaði breytingartillögu Sjálfstæðisflokksins sem gekk mun lengra. Málið fer nú áfram til borgarráðs. Eins og fram kom í fyrri frétt Vísis snerist tillagan sem lá fyrir ráðinu að því að fjölga bílastæðum við nýbyggingar með því að rýmka viðmið um allt að 0,5 stæði á íbúð. Þar kom fram að á svæði 1 ættu viðmið fyrir eins herbergja íbúð að hækka úr 0,25 í 0,5 og fyrir fjögurra herbergja íbúð úr 0,75 í 1. Á svæði 2 átti viðmið fyrir eins herbergja íbúð að hækka úr 0,5 í 0,75, fyrir tveggja herbergja íbúð úr 0,75 í 1 og fyrir þriggja og fjögurra herbergja íbúðir úr 1 í 1,5. Hámarksviðmið átti jafnframt að hækka í nokkrum flokkum. Reglur um fjölda bílastæða við nýbyggingar verða rýmkaðar verði tillaga umhverfis- og skipulagsráðs að veruleika. Vilhelm Þetta var sú upphaflega tillaga sem ráðið samþykkti á fundi sínum miðvikudaginn 25. mars. Á sama fundi lagði Sjálfstæðisflokkurinn fram breytingartillögu við málið þar sem flokkurinn vildi ganga lengra: afnema hámarksfjölda bílastæða, miða almennt við að lágmarki eitt bílastæði á hverja íbúð, gera ráð fyrir 1,5 stæðum við stærri íbúðir, fella niður svæðaskiptingu og auka svigrúm byggingaraðila til að víkja frá viðmiðunum. Sú breytingartillaga var felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokksins og Vinstri grænna gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Fulltrúi Viðreisnar sat hjá við afgreiðslu þeirrar tillögu. Að því loknu var upphaflega tillagan samþykkt og henni vísað til borgarráðs. Friðjón R. Friðjónsson er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og skipulagsráði. Sigurjón Ólason Í bókun Sjálfstæðisflokksins segir að flokkurinn harmi að breytingartillaga hans um einföldun og skýrari viðmið hafi verið felld, þótt flokkurinn hafi engu að síður stutt tillögu sviðsins þar sem hún væri skref í rétta átt. Framsókn tók í svipaðan streng en sagði breytinguna á stefnu meirihlutans bera vott um „kosningaskjálfta“, hins vegar væri batnandi best að lifa. Viðreisn sagði ánægjulegt að sjá breytingartillögu um bílastæðareglur og taldi áherslu á gestastæði og aukin viðmið geta bætt aðgengi að nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu.
Reykjavík Skipulag Bílastæði Borgarstjórn Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira