Hlaut stjörnulaga skurði eftir árás með skiptilykli Árni Sæberg skrifar 27. mars 2026 14:26 Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í málinu þann 23. mars. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið dæmdur til átta mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir meiri háttar líkamsárás, með því að slá mann tvívegis í höfuðið með skiptilykli. Sá sem varð fyrir höggunum hlaut af þeim tvo stjörnulaga skurði á höfði.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp 23. mars, segir að samkvæmt ákæru hafi árásin verið framin á veitingahúsi í Reykjavík á fimmtudagskvöldi í september árið 2022. Maðurinn hafi játað þá háttsemi sem lýst var í ákæru skýlaust og því hafi málið verið dómtekið án frekari sönnunarfærslu. Við ákvörðun refsingar hafi verið litið til þess að maðurinn gerðist sekur um sérstaklega hættulega líkamsárás sem beindist gegn höfði brotaþola. Á hinn bóginn hafi hann játað háttsemina skýlaust og það sé metið honum til refsilækkunar. Þá hafi verið litið til þess að rannsókn málsins tók langan tíma. Fyrst hafi verið tekin skýrsla af manninum vegna brotsins 23. september 2022 en síðan ekki aftur fyrr en 7. mars 2025, það er næstum tveimur og hálfu ári síðar. Þessi mikli dráttur á rannsókn málsins hafi ekki verið útskýrður. Með vísan til alls þessa þyki refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í átta mánuði sem rétt þyki, með vísan til mikils dráttar á rannsókn málsins, að skilorðsbinda að öllu leyti. Þá var maðurinn dæmdur til að greiða brotaþola 400 þúsund krónur í miskabætur og til greiðslu málsvarnarþóknunar verjanda síns, 1,2 milljóna króna.
Dómsmál Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Sjá meira